Ás

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júní 2007 kl. 13:50 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júní 2007 kl. 13:50 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ás

Húsið Ás var byggt árið 1903 og stendur við Kirkjuveg 49. Þar bjó lengi vel Sighvatur Bjarnason (Sighvatur í Ási), skipstjóri og útgerðarmaður, ásamt konu sinni, Guðmundu Torfadóttur og börnum þeirra. Einnig var bakarí í kjallaranum. Nú búa í Ási Bragi Ólafsson (Bragi á Fluginu) og kona hans Laufey Bjarnadóttir. Fengu þau viðurkenningu árið 2006 frá Umhverfissviði bæjarins og Rotaryklúbbnum fyrir endurbætur til fyrirmyndar.




Heimildir

  • Kirkjuvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.