Árni Hafliðason (Ömpuhjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. apríl 2015 kl. 16:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. apríl 2015 kl. 16:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Hafliðason sjómaður í Ömpuhjalli fæddist í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, skírður 5. ágúst 1795 og lést 26. júlí 1847.
Foreldrar hans voru Hafliði Erlendsson bóndi í Stóru-Hildisey og víðar í Landeyjum, f. 1763 í Ólafshúsum u. Eyjafjöllum, d. 7. mars 1820 á Bryggjum í A-Landeyjum, og kona hans Þuríður Árnadóttir húsfreyja, f. 1766 í Stóru-Hildisey, d. 31. október 1846.

Árni var með foreldrum sínum í Ey í V-Landeyjum 1801. Hann var vinnumaður í Hallgeirsey í A-Landeyjum 1816.
Hann fluttist frá Miðhúsum í A-Landeyjum til Eyja 1830 og bjó í Tómthúsi¹), en í Hallbergshúsi 1835 með Guðnýju og börnunum Helgu 2 ára og Guðnýju 1 árs.
Hann var í Árnahúsi 1836 með Guðnýju konu sinni og börnunum Guðnýju á 2. ári og Helgu 3 ára.
Þau voru í Ömpuhjalli 1840 með sömu börn, en 1845 var Helga farin, en hún var þá 13 ára vinnukona í Godthaab.
Árni lést 1847, og 1850 var Guðný ekkja og tómthúskona í Ömpuhjalli með Guðnýju 15 ára hjá sér.

Kona Árna, (4. október 1829), var Guðný Erasmusdóttir húsfreyja, f. 6. september 1794, d. 14. júní 1888 í Vesturheimi.
Börn þeirra hér:
1. Guðlaug Árnadóttir vinnukona, f. 14. janúar 1824, d. 12. nóvember 1893.
2. Þuríður Árnadóttir, f. 4. júlí 1830, d. 12. júlí 1830 úr ginklofa.
3. Gísli Árnason, f. 16. ágúst 1831 í Tómthúsi, d. 23. ágúst úr ginklofa.
4. Jón Árnason, f. 3. ágúst 1832 í Hjalli, d. 15. ágúst 1832 í Tómthúsi úr ginklofa.
5. Helga Árnadóttir, f. 6. júlí 1833 í Tómthúsi, d. 15. febrúar 1907 í Vesturheimi.
6. Guðný Árnadóttir, f. 27. desember 1834, d. 7. desember 1915 í Vesturheimi. Hún er nefnd Helga í pr.þj.bók, fædd þennan dag, en sú finnst ekki við frekari leit. Guðný finnst því ekki fædd, en er með foreldrum 1835, eins árs.
¹) Tómthús og Hjallur munu hafa verið húsnöfn almenns eðlis. Þau hafa gjarnan heitið eftir húsráðanda hverju sinni, sbr. Árnahús, Hallbergshús. Hjallarnir voru fiskhjallar bændanna, þar sem tómthúsfólk bjó líklega á hæð fyrir ofan, sbr Nýjabæjarhjallur, Þorlaugargerðishjallur. Ömpuhjallur hefur borið fast nafn. Þar hefur Arnbjörg (Ampa) búið og nafn hennar fest við húsið. Svo hefur einnig verið um Helgahjall.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.