Árni Þorláksson (Djúpadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. febrúar 2016 kl. 17:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. febrúar 2016 kl. 17:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Árni Þorláksson (Djúpadal)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Árni Þorláksson frá Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd, bóndi í Bergskoti þar, síðar verkamaður í Djúpadal fæddist 18. júlí 1853 og lést 1. mars 1929.
Foreldrar hans voru Þorlákur Bjarnason bóndi, f. 1820, d. 1871, og kona hans Þuríður Benediktsdóttir húsfreyja, f. 11. júlí 1826, á lífi 1890.

Árni var með foreldrum sínum á Minna-Knarrarnesi í æsku, var lausamaður í Munaðarnesi í Borgarfirði 1880, en þar var Helga Kjartansdóttir fósturdóttir húsfreyjunnar.
Þau Helga bjuggu í Bergskoti á Vatnsleysuströnd 1890, eignuðust 7 börn. Hún lést 1899.
Árni var kominn til Seyðisfjarðar 1901.
Hann bjó með Gróu í Sjólyst í Seyðisfirði 1901, fluttist með henni til Eyja 1916.
Þau voru leigjendur á Litlu-Grund 1917 og 1918, í Stafholti 1919 og 1920, í Djúpadal 1921 og enn 1927.
Árni lést 1929.

I. Kona Árna var Helga Kjartansdóttir, f. 21. nóvember 1855, d. 10. september 1899.
Börn þeirra hér:
1. Guðmundur Árnason prestur og barnaskólakennari í Kanada, f. 4. apríl 1880, d. 24. febrúar 1943.
2. Eggert Júlíus Árnason, f. 6. júlí 1885. Hann fór til Vesturheims 1903 frá Brimnesi í Seyðisfirði.
3. María Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík og Garðabæ, f. 24. maí 1888, d. 11. janúar 1981.
4. Þorlákur Árnason verkamaður í Reykjavík, f. 20. maí 1890, d. 2. nóvember 1963.
5. Kristín Margrét Árnadóttir húfreyja í Lambhaga í Kjós og í Reykjavík, f. 23. júní 1893, d. 31. júlí 1972.
6. Kristinn Árnason bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 13. mars 1895, d. 24. júlí 1965.
7. Sigurður Árnason, f. 31. janúar 1897, d. 23. janúar 1902. Hann var í fóstri í Narfakoti í Kálfatjarnarsókn 1901.

II. Sambýliskona Árna var Gróa Pétursdóttir húsfreyja, ekkja, f. 18. febrúar 1868, d. 27. desember 1938.
Börn þeirra voru:
5. Helga Sigríður Árnadóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1902 á Brimbergi á Seyðisfirði, d. 4. ágúst 1986.
6. Árni Árnason frá Djúpadal, sjómaður, f. 13. febrúar 1911 á Þórarinsstaðaeyrum við Seyðisfjörð, d. 5. febrúar 1930.
Fóstursonur Árna, barn Gróu frá fyrra hjónabandi, var
7. Jón Jónsson, f. 24. apríl 1899 á Norðfirði, d. 14. mars 1975. Hann var í Djúpadal 1930, síðast á Elliheimilinu.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.