Árni Árnason (símritari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 15:03 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 15:03 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Árni Árnason, símritari í Vestmannaeyjum.

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Árni Árnason


Árni Árnason símritari, fæddist að Búastöðum 19. mars 1901 og lést 13. október 1962. Hann var sonur Jóhönnu Lárusdóttur og Árna sem hlaut sitt uppeldi hjá Árna Einarssyni og konu hans á Vilborgarstöðum. Hann var dóttursonur hreppstjórahjónanna Lárusar Jónssonar og Kristínar Gísladóttur. Árið 1901 byggðu foreldrar hans úbúðarhús við Kirkjuveg sem ber nafnið Grund. Árni kvæntist Katrínu Árnadóttur árið 1926. Hún var dóttir Árna Filippussonar í Ásgarði. Þau eignuðust eina dóttur, Hildu.

Á veturna gekk Árni í barnaskólann frá 10-14 ára aldri og var hann góður námsmaður. Lauk hann fullnaðarprófi barnafræðslunnar í febrúar 1915 með einkunnina 7,19 en þá var hæst gefið 8. Árið 1919 hóf Árni störf sem símritari hjá Landssíma Íslands og hætti árið 1961 vegna veikinda.

Árni kom í verk að skrá mikinn sögulegan fróðleik síðustu æviár sín. Hann skrifaði meðal annars margar greinar um sögu Leikfélagsins í Vestmannaeyjum. Hann var auk þess í knattspyrnuliðinu sem Eyjamenn sendu til Reykjavíkur árið 1920 til þess að keppa við Val. Sá kappleikur vakti mikla athygli fyrir leikni ungu Eyjamannanna sem voru að keppa við þrautþjálfað lið Vals. Árni stundaði auk þess spjótkast og spretthlaup. Hann keppti á Þjóðhátíð og til að mynda vann hann spjótkastið árið 1922 og kastaði spjótinu 39,10 m. Hann var í veiðifélagi Álseyjar. Árni spilaði á harmonikku með Lúðrasveit Vestmannaeyja og þótti góður. Vestmannaeyjabær keypti ritsafn hans og er það varðveitt á Skjalasafni Vestmannaeyja.

Starfsmenn á Símstöðinni í göngu. Smellið á myndina til að fá upplýsingar um fólkið á myndinni.

Heimildir