Árni Árnason (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. nóvember 2020 kl. 16:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. nóvember 2020 kl. 16:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Árnason bóndi og sjómaður á Vilborgarstöðum fæddist 6. ágúst 1843 í Rimakoti í A-Landeyjum og drukknaði 13. mars 1874.
Faðir hans var Árni bóndi á Skækli og síðan í Rimakoti í A-Landeyjum, f. 5. ágúst 1803 á Skækli (nú Guðnastaðir) þar, d. 12. janúar 1854 í Rimakoti, Pálsson bónda á Skækli, Skíðbakka og í Kúfhól þar, f. 1779 á Skíðbakka, d. 9. desember 1851 í Rimakoti, Jónssonar bónda í Vatnshól þar 1775, f. (1735), Sigurðssonar, og konu hans (7. ágúst 1768) Signýjar húsfreyju, f. 1736, d. 17. mars 1809, Pálsdóttur.
Móðir Árna í Rimakoti og kona Páls Jónssonar var (28. október 1802) Guðrún húsfreyja, f. 1777 í Hólmum í A-Landeyjum, d. 13. janúar 1852 í Rimakoti, Árnadóttir bónda í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum 1787-1802, f. 1727, d. 16. mars 1802, Guðmundssonar, og konu Árna, Ingveldar húsfreyju, f. 1738, d. 30. apríl 1806 í Litlu-Hildisey, Árnadóttur.

Móðir Árna á Vilborgarstöðum og fyrri kona (30. október 1829) Árna í Rimakoti var Ingveldur húsfreyja, f. 29. september 1806 á Núpi undir Eyjafjöllum, d. 6. ágúst 1843 í Rimakoti, Ormsdóttir bónda á Butru í A-Landeyjum, Núpi, á Ysta-Skála og í Gerðakoti undir Eyjafjöllum, f. 10. júní 1763 á Butru, d. 30. mars 1820 í Gerðakoti, Ormssonar bónda í Krosshverfi í Landeyjum, líklega Hólmum og síðast á Butru, f. 1726, Jónssonar, og konu hans, Guðrúnar húsfreyju, f. 1722 í Fljótshlíð, á lífi 1775, Sigurðardóttur.
Móðir Ingveldar Ormsdóttur og síðari kona (2. júlí 1797) Orms Ormssonar var Björg húsfreyja, f. 1771 í Dúðu í Fljótshlíð, d. 16. febrúar 1840 á Búðarhóli í A-Landeyjum, Benediktsdóttir bónda á Kirkjulæk í Fljótshlíð, f. 1748, Þorsteinssonar, og fyrri konu Benedikts.

Árni var tvíburi, bróðir hans fæddist andvana og Ingveldur móðir þeirra dó samdægurs.
Stjúpmóðir Árna og síðari kona Árna Pálssonar var Vilborg Þorsteinsdóttir húsfreyja í Rimakoti, f. 12. maí 1804, d. 26. desember 1858.

Árni var með föður sínum og stjúpu uns hann fluttist í fóstur til Bjargar systur sinnar á Vilborgarstöðum 1854, 11 ára.
Hann var tökubarn þar 1855, vinnudrengur 1860, vinnumaður til 1865.
Við giftingu 1866 bjuggu þau Vigdís á Fögruvöllum með Jóhönnu Sigríði dóttur hennar.
Á næsta ári voru þau komin að Vilborgarstöðum með Jóhönnu Sigríði þriggja ára og Ingveldi eins árs.
1870 hafði Árni bæst í hópinn á 1. ári.
1873 var Hildur mætt.
Árni fórst af Gauki, er honum hlekktist á við Klettsnef 13. mars 1874.
Þeir, sem fórust, voru:
1. Árni Árnason bóndi að Vilborgarstöðum.
2. Gísli Brynjólfsson ekkjumaður í Móhúsum, sem var ein af Kirkjubæjarjörðunum. Hann var faðir Solveigar móður Gísla á Arnarhóli.
3. Erlendur Pétursson, vinnumaður í Litlakoti (nú Veggur).
4. Jón Jónsson húsmaður í Dölum.
5. Sigurður Eyjólfsson, vinnumaður á Steinsstöðum.
6. Stefán Austmann í Vanangri.
7. Brynjólfur Einarsson frá Dölum, þá vinnumaður í Jónshúsi.
8. Sighvatur Sigurðsson bóndi á Vilborgarstöðum og formaður á bátnum komst af, en lést af afleiðingum slyssins um sumarið eftir. Hann var systurmaður Árna Árnasonar.

Kona Árna, (26. október 1866), var Vigdís Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1845, látin í Vesturheimi.
Börn þeirra Vigdísar:
1. Ingveldur Árnadóttir, f. 28. júní 1867, d. 2. mars 1948 í Vesturheimi.
2. Árni Árnason sjómaður á Grund, f. 15. júlí 1870, d. 8. janúar 1924.
3. Hildur Árnadóttir, f. 10. júlí 1873, d. 25. júní 1918. Fór með móður sinni til Utah 1880.
Barn Vigdísar og stjúpbarn Árna var
4. Jóhanna Sigríður Árnadóttir Níelssonar, f. 9. júli 1864, d. 7. febrúar 1938 Vestanhafs.

Ættbogi í Eyjum

Mikil ætt er í Eyjum frá foreldrum Árna Árnasonar á Vilborgarstöðum, þeim Árna Pálssyni og Ingveldi Ormsdóttur í Rimakoti:

I. Árni Pálsson og Ingveldur Ormsdóttir.

1. Ingibjörg Árnadóttir á Efrahvoli, f. 25. október 1840, d. 25. september 130 og m.h. Sigurður Gunnlaugsson Einarssonar:
a) Páll Sigurðsson í Laufholti, f. 8. mars 1873, d. 8. október 1924 og k.h. Soffía Helgadóttir.
aa) Björgvin Hafsteinn Pálsson í Brekkuhúsi, f. 20. jan. 1909, d. 22. maí 1932, hrapaði úr Mykitakstó.
ab) Guðrún Pálsdóttir í Vinaminni, f. 21. júlí 1900, d. 24. október 1969, kona Benedikts Friðrikssonar skósmiðs.

b) Sigurbjörg Sigurðardóttir í Brekkuhúsi, f. 20. janúar 1863, d. 3. júní 1956.
ba) Sigurjón fisksali Sigurðsson, f. 6. mars 1890, d. 8. júní 1959.
bb) Guðbjörg Aðalheiður Sigurðardóttir frá Brekkuhúsi, f. 15. febrúar 1896, d. 30. janúar 1958.

c) Ingvar Sigurðsson vinnumaður á Gjábakka f. 20. júlí 1875, d. 27. október 1896.

2. Árni Árnason á Vilborgarstöðum, f. 6. ágúst 1843, fórst með Gauki 13. mars 1874.
a) Árni Árnason á Grund, f. 15. júlí 1870, d. 18. janúar 1924.
aa) Auðbjörg Ástrós Árnadóttir, f. 24. október 1892, d. 1895.
ab) Lárus Georg Árnason á Búastöðum, f. 11. maí 1896, d. 16. febrúar 1967.
ac) Bergþóra Árnadóttir á Heiði, f. 13. september 1898, d. 17. október 1969.
ad) Árni símritari, f. 19. mars 1901, d. 13. október 1962.
ae) Guðfinna Ástdís Árnadóttir frá Grund, f. 19. nóvember 1903, d. 5. október 1990.

3. Björg Árnadóttir á Vilborgarstöðum, f. 3. nóvember 1830, d. 4. júní 1915.
Börn Árna Jónssonar og Bjargar:
a. Páll Árnason sjómaður, f. 22. febrúar 1852, fór til Vesturheims.
b. Ingveldur Árnadóttir, f. 19. febrúar 1853, d. 16. ágúst 1853 „af barnaveiki“.
c. Árni Árnason, f. 21. febrúar 1855. Hann fór til Vesturheims.
Börn Bjargar og Sighvats Sigurðssonar:
d. Friðrika Sighvatsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1858, gift Vigfúsi Scheving bónda, f. 5. september 1852, d. 23. desember 1939.
e. Pálína Sighvatsdóttir, f. 24. nóvember 1861, giftist í Kaupmannahöfn.
f. Sigríður Sighvatsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 3. júní 1864, d. 12. september 1902, gift Jóni Eyjólfssyni.
g. Kristján Loftur Sighvatsson, f. 14. desember 1866, d. 20. maí 1890.
h. Guðmundur Sighvatsson, f. 16. maí 1871, d. 9. september 1871, „dó hastarlega úr magaveikindum“.
i. Björg Sighvatsdóttir húsfreyja á Gilsbakka, f. 5. júní 1873, d. 22. maí 1955, gift Erlendi Árnasyni.

4. Guðbjörg Árnadóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 6. október 1835, d. 1. nóvember 1928. Hún var kona Bergs Magnússonar bróður Óla í Nýborg. Síðar varð hún kona Sæmundar Guðmundssonar húsmanns þar.
a. Sigurður Bergsson sonur hennar dó innan við tvítugt.

5. Nikulás bóndi í Krosshjáleigu í A-Landeyjum Árnason.
a) Einar Nikulásson og Valgerður Oddsdóttir á Búðarhóli í A-Landeyjum. Valgerður var systir Sigurðar Péturs Oddssonar í Skuld, föður Skuldarsystkina.

aa) Óskar Einarsson lögregluþjónn, f. 11. janúar 1908, d. 13. maí 1978.
aaa) Guðný Óskarsdóttir, f. 1. júní 1935.
aab) Valgerður Erla Óskarsdóttir, f. 24. maí 1937, kona Friðriks á Löndum.
aac) Gísli Óskarsson, f. 19. júní 1939, d. 12. mars 2009.
aad) Rebekka Óskarsdóttir, f. 23. október 1941, d. 26. október 1971.
aae) Sigurbjörg Rut Óskarsdóttir, f. 22. september 1946.
aaf) Einar Óskarsson, f. 7. janúar 1952.

ab) Sigurbjörg Einarsdóttir húsfreyja í Breiðholti, kona Bjarna dýralæknis.
aba) Einar Valur læknir.
abb) Sigríður Bjarnadóttir, f. 19. febrúar 1931, kona Stefáns Helgasonar ökukennara og bifreiðaeftirlitsmanns.
abc) Gunnhildur Bjarnadóttir, f. 4. apríl 1935, kona Eiríks Guðnasonar skólastjóra.

ac) Guðný Kristjana Einarsdóttir, f. 18. nóvember 1891, d. 9. október 1964, síðari kona Haralds Sigurðssonar á Sandi. Börn þeirra:
aca) Rúrik Theodór Haraldsson leikari.
acb) Haraldur Ágúst Haraldsson járnsmiður, f. 27. október 1919.
acc) Friðrik Haraldsson bakarameistari, f. 9. ágúst 1922.
acd) Ása Haraldsdóttir húsfreyja, f. 12. júlí 1928.

6. Sigríður Árnadóttir bústýra á Sléttubóli í A-Landeyjum, f. 30. júní 1838 í Rimakoti.
a) Guðmundur Guðmundsson í Hrísnesi hér, f. 26. ágúst 1867, d. 24. febrúar 1950, kvæntur Guðríði Andrésdóttur, f. 10. nóvember 1880.
aa) Guðmundur Andrés Guðmundsson, f. 16. nóvember 1915, d. 1. janúar 1994.
6. Sigríður Árnadóttir bústýra á Sléttubóli í A-Landeyjum, f. 30. júní 1838 í Rimakoti. Sambýlismaður hennar og barnsafaðir var Guðmundur Diðriksson bóndi þar.
a) Guðmundur Guðmundsson í Hrísnesi hér, f. 26. ágúst 1867, d. 24. febrúar 1950, kvæntur Guðríði Andrésdóttur, f. 10. nóvember 1880.
aa) Guðmundur Andrés Guðmundsson, f. 16. nóvember 1915, d. 1. janúar 1994.
b) Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja, kona Hreins Skúlasonar bónda á Bryggjum í A-Landeyjum.
ba) Guðbjörg Sigríður Hreinsdóttir húsfreyja á Litla-Hrauni, f. 6. maí 1890, d. 24. desember 1951, kona Jóhanns Ívarssonar.
bb) Hannes Hreinsson á Hæli.
7. Jón Árnason vinnumaður í Draumbæ, f. 14. desember 1847, d. 16. júní 1883. Hann var sonur seinni konu Árna í Rimakoti. Ókvæntur.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Árni Árnason.
  • Heimaslóð.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.