Árný Hulda Steinþórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. janúar 2023 kl. 16:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. janúar 2023 kl. 16:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Árný Hulda Steinþórsdóttir. '''Árný Hulda Steinþórsdóttir''' frá Gjábakka við Bakkastíg, húsfreyja fæddist þar 11. júní 1923 og lést 18. mars 2005 á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík.<br> Foreldrar hennar voru Steinþór Albertsson frá Kumlavík á Langanesi, bóndi, verkamaður, f. 8. janúar 1885, d. 13. apríl 1955, og kona hans Ragnhei...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Árný Hulda Steinþórsdóttir.

Árný Hulda Steinþórsdóttir frá Gjábakka við Bakkastíg, húsfreyja fæddist þar 11. júní 1923 og lést 18. mars 2005 á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Steinþór Albertsson frá Kumlavík á Langanesi, bóndi, verkamaður, f. 8. janúar 1885, d. 13. apríl 1955, og kona hans Ragnheiður Árnadóttir frá Hvítanesi í Garðasókn, Borg., húsfreyja, f. þar 23. nóvember 1892, d. 1. júlí 1980.

Börn Ragnheiðar og Steinþórs:
1. Berta Soffía Steinþórsdóttir, f. 7. mars 1913 í Eyjum, d. 14. júní 2002. Maður hennar Sigurður Magnússon.
2. Jóhann Ólafur Júlíus Steinþórsson húsgagnasmíðameistari í Kópavogi, f. 24. júlí 1916 í Viðvík, N.-Múl., d. 14. september 1957. Kona hans Jórunn Helga Ámundadóttir.
3. Ragnar Vilberg Steinþórsson, f. 3. nóvember 1918 í Viðvík í N.-Múl., d. 22. október 1940.
4. Árný Hulda Steinþórsdóttir, f. 11. júní 1923 á Gjábakka, d. 18. mars 2005. Maður hennar Brynjólfur Önfjörð Steinsson.
5. Gréta Þorbjörg Steinþórsdóttir, f. 24. september 1924 á Syðri-Gjábakka, d. 21. desember 2011. Maður hennar Bragi Þorsteinsson.
6. Hilmar Steinþórsson, f. 27. febrúar 1929 á Ásum, d. 8. desember 2014.

Árný Hulda var með foreldrum sínum í æsku, á Gjábakka og á Ásum, flutti með þeim til Reykjavíkur 1930.
Þau Brynjólfur giftu sig 1946, eignuðust ekki börn. Þau bjuggu síðast á Hringbraut 50 í Reykjavvík.
Brynjólfur lést 1981 og Árný Hulda 2005.

I. Maður Árnýjar Huldu, (1946), var Brynjólfur Önfjörð Steinsson vélvirki, f. 20. janúar 1921 í Hlíðarhúsum á Ísafirði, d. 1. mars 1981. Foreldrar hans voru Steinn Sigurðsson verkamaður, f. 26. október 1879, d. 2. desember 1940, og kona hans Ólöf Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 24. október 1875, d. 23. júlí 1929.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.