Ármann Bjarnason (Laufholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2016 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2016 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ármann Bjarnason''' í Laufholti, sjómaður, matsveinn fæddist 10. nóvember 1910 í Bjarnaborg á Norðfirði og lést 11. október 1999 í Hraunbúðum.<b...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ármann Bjarnason í Laufholti, sjómaður, matsveinn fæddist 10. nóvember 1910 í Bjarnaborg á Norðfirði og lést 11. október 1999 í Hraunbúðum.
Foreldrar hans voru Bjarni Hildibrandsson frá Parti í Sandvík, verkamaður, f. 12. apríl 1862, d. 2. desember 1931, og kona hans Halldóra Bjarnadóttir húsfreyja frá Ormstaðahjáleigu í Norðfirði, f. 13. júlí 1879, d. 17. apríl 1920.

Móðir Ármanns lést, er hann var 9 ára. Hann var með föður sínum Bjarna vinnumanni í Litla-Tröllanesi í Neskaupstað 1920, fór í fóstur að Sjónarhóli í Neskaupstað til Marteins Magnússonar frænda síns og Guðrúnar Maríu Steindórsdóttur.
Ármann stundaði sjó frá Höfn í Hornafirði, vann í nokkur ár í Reykjavík, var þjónn á Hótel Borg og á e.s. Dettifossi.

ctr


Matsveinanámskeið Gagnfræðaskólans 1937.
Aftari röð frá vinstri: Kristján Thorberg, Garðstöðum, Hlöðver Johnsen, Suðurgarði, Gestur Auðunsson, Sólheimum, Jóhann Kristjánsson, Skipholti, Pétur Sigurðsson, Pétur Guðbjartsson, Brimhólabraut.
Fremri röð frá vinstri: Guðjón Jónsson, Vinaminni, Ármann Bjarnason, Hásteinsvegi, Sigurbjörn Ásbjörnsson, matreiðslukennari, Ögmundur Sigurðsson, Landakoti og Vigfús Guðmundsson, Vallartúni.


Ármann fluttist til Eyja 1931, var þar sjómaður. Hann sótti matsveinanámskeið Gagnfræðaskólans 1937 og var síðan matsveinn til sjós og lands, m.a. á Skaftfellingi, Helga og Bergi. Frá 1960 vann hann í landi, m.a. hjá þvottahúsi bæjarins og hjá Ísfélaginu.
Þau Guðmunda Margrét giftu sig 1935, bjuggu í fyrstu á Seljalandi, húsi móður Guðmundu Margrétar, voru þar með börnum sínum Halldóru og Herberti 1940.
Þau Ármann fluttu að Laufholti og bjuggu þar, eignuðust Jónínu þar 1949 og Maríu 1953.
Að síðustu dvöldu þau í Hraunbúðum.
Guðmunda Margrét lést 1998 og Ármann 1999.

Kona Ármanns, (19. október 1935), var Guðmunda Margrét Jónsdóttir frá Seljalandi, f. 16. mars 1914, d. 23. september 1998.
Börn þeirra:
1. Halldóra Ármannsdóttir, f. 8. desember 1935 á Seljalandi.
2. Herbert Ármannsson, f. 1. mars 1939 á Seljalandi.
3. Jónína Ármannsdóttir, f. 3. febrúar 1949 í Laufholti, d. 24. nóvember 1984.
4. María Ármannsdóttir, f. 21. mars 1953 í Laufholti.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.