Ágústa Magnúsdóttir (Hamri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ágústa Magnúsdóttir frá Hamri við Skólaveg 33, húsfreyja fæddist 27. febrúar 1953 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Magnús Magnússon frá Sjónarhóli, sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, f. 5. júlí 1927, d. 14. september 2002, og kona hans Þórða Eva Valdimarsdóttir frá Bræðraborg við Njarðarstíg 3, húsfreyja, f. 20. desember 1927, d. 29. september 1989.

Börn Evu og Magnúsar:
1. Ágústa Magnúsdóttir húsfreyja, f. 27. febrúar 1953. Maður hennar er Viktor Hjartarson.
2. Valur Magnússon, f. 13. febrúar 1954 í Bræðraborg. Kona hans er Védís Gunnarsdóttir.
3. Hugrún Magnúsdóttir húsfreyja, bréfberi, f. 10. mars 1958. Maður hennar er Haraldur Sverrisson.
4. Magnús Þór Magnússon, f. 5. janúar 1961 á Hamri. Sambýliskona hans var Anna Ísfold Kolbeinsdóttir, látin.
5. Einar Magnússon, f. 13. mars 1962 á Hamri. Kona hans er Linda Sigurbjörg Halldórsdóttir.

Ágústa var með foreldrum sínum í æsku, með móður sinni í Bræðraborg og foreldrum sínum á Hamri.
Þau Viktor giftu sig 1971, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Breiðholti við Vestmannabraut 52, við Hrauntún 14, síðan í Sandgerði.
Viktor lést 2024.

I. Maður Ágústu, (1971), var Viktor Hjartarson, f. 31. mars 1951, d. 25. mars 2024.
Börn þeirra:
1. Magnús Elvar Viktorsson, f. 28. desember 1970. Kona hans Linda Marý Stefánsdóttir.
2. Sigurgeir Viktorsson, f. 1. desember 1974. Kona hans Aldís Ýr Ólafsdóttir.
3. Jóna María Viktorsdóttir, f. 2. september 1981. Maður hennar Grétar Ólafur Hjartarson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íbúaskrá 1972 og 1986.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið. Minning Viktors.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.