Ágúst Runólfsson (sjómaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. júlí 2022 kl. 11:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2022 kl. 11:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ágúst Runólfsson (sjómaður)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristmann Ágúst Runólfsson frá Ytri-Ásláksstöðum á Vatnsleysuströnd, sjómaður, útgerðarmaður fæddist þar 28. ágúst 1889, d. 30. nóvember 1966.
Foreldrar hans voru Runólfur Stefánsson bóndi, sjómaður, f. 10. september 1850, d. 27. júlí 1895, og bústýra hans Sigurlaug Guðmundsdóttir, f. 15. ágúst 1854, d. 12. mars 1948.

Ágúst var með foreldrum sínum í Nýjabæ á Vatnsleysuströnd 1890, en faðir hans lést, er Ágúst var tæpra sex ára. Hann var niðursetningur í Hábæ á Vatnsleysuströnd 1901, vinnumaður í Reykjavík 1910.
Hann flutti til Eyja 1918, var skipstjóri þar í Laugardal við Vesturveg 5b 1920, sjómaður á Rauðafelli við Vestmannabraut 58b 1930 og enn 1945. Hann var um skeið í útgerð.
Þau Þórunn giftu sig 1920, eignuðust fjögur börn, en misstu síðasta barnið á fyrsta ári þess.
Þau bjuggu síðast í Reykjavík, á Barónsstíg 63.
Þórunn lést 1964 og Ágúst 1966.

I. Kona Ágústs, (19. maí 1918), var Þórunn Guðmundsdóttir frá Núpi í Fljótshlíð, húsfreyja, f. þar 4. janúar 1893, d. 11. nóvember 1964.
Börn þeirra:
1. Þuríður Guðmunda Ágústsdóttir, f. 19. október 1920 í Laugardal, síðast í Reykjavík, d. 16. október 1976.
2. Sigurður Ágústsson rakari í Reykjavík, f. 9. júlí 1923 á Rauðafelli, d. 30. júlí 1981.
3. Fjóla Ágústsdóttir húsfreyja, f. 22. janúar 1927 á Rauðafelli, síðar á Mánabraut 14 í Kópavogi.
4. Sigríður Alda Ágústsdóttir, f. 9. apríl 1932 á Rauðafelli, d. 26. júní 1932.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.