Ágúst Matthíasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júlí 2013 kl. 22:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júlí 2013 kl. 22:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ágúst Vilhjálmur Matthíasson''' frá Litlu-Hólum fæddist 30. júlí 1914 og lést 21. janúar 1988.<br> Foreldrar hans voru Matthías Finnbogason vélfræ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Vilhjálmur Matthíasson frá Litlu-Hólum fæddist 30. júlí 1914 og lést 21. janúar 1988.
Foreldrar hans voru Matthías Finnbogason vélfræðingur, f. 25. febrúarl 1882, d. 9. júní 1969 og kona hans Sigríður Ólöf Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 29. janúar 1880, d. 17. júní 1949.

Ágúst lauk prófi frá Samvinnuskólanum 1934.
Hann var forstjóri Vöruhússins um skeið og einn eigenda Fiskiðjunnar h.f.
Ágúst tók þátt í félagsmálum atvinnurekenda í Eyjum, var formaður í Félagi kaupsýslumanna í nokkur ár, formaður Félags atvinnurekenda og sat í stjórn Lifrarsamlagsins.
Til Reykjavíkur fluttist Ágúst 1969 og stundaði þar verslunarstörf.

Kona Ágústs, (26. júní 1937), Sigurbjörg Margrét Benediktsdóttir húsfreyja, fædd 2. apríl 1916, dáin 13. október 2004.
Börn þeirra:
1. Sigríður Rósa, fædd 5. október 1937, dáin 13. september 1997.
2. Guðrún Helga, fædd 12. september 1940.
3. Kristbjörg, fædd 13. september 1945.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Æviskrár samtíðarmanna - fyrsta bindi. Torfi Jónsson. Skuggsjá 1982.