Ásmundur Ásmundsson (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júní 2015 kl. 11:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júní 2015 kl. 11:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ásmundur Ásmundsson húsmaður, vinnumaður, fæddist 1801 í Stokkseyrarseli í Flóa og hrapaði til bana 20. júní 1846.
Móðir hans var Guðrún Jónsdóttir vinnukona í Eystra-Stokkseyrarseli 1801, f. 1765, kom til Eyja með Ásmundi 1824, 60 ára..

Ásmundur var tökupiltur á Butraldastöðum í Teigssókn 1816. Hann fluttist frá Grjóta í Fljótshlíð til Eyja 1824 ásamt Guðrúnu móður sinni 60 ára, skráður bóndi í Ólafshúsum í lok árs 1824, húsmaður í Þorlaugargerði 1825 með Margréti konu sinni og Guðrúnu móður sinni, húsbóndi í Ólafshúsum 1826, þar 1828, húmaður á Ofanleiti 1832 og 1833, vinnumaður þar 1834 og 1835, tómthúsmaður í Kastala 1840, vinnumaður í Götu 1845.
Hann hrapaði til bana „í sjó“ 1846.

Kona Ásmundar, (5. október 1824), var Margrét Guðmundsdóttir frá Ólafshúsum, f. 8. ágúst 1792, d. 29. júní 1862.
Barn þeirra hér:
3. Valgerður Ásmundsdóttir, f. 17. október 1825, d. 28. október 1825 úr ginklofa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.