Ólafur Ólafsson (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 22:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 22:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ólafsson vinnumaður frá Dölum fæddist 1842 í A-Landeyjum og hrapaði til bana 14. júlí 1867.

Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson bóndi í Dölum, f. 1800, d. 21. september 1863, og barnsmóðir hans Valgerður Magnúsdóttir vinnukona, f. 1806.

Ólafur var með föður sínum í Dölum 1845 og enn 1855. Hann var vinnumaður í Frydendal 1860 og enn við andlát 1867.
Hann hrapaði til bana úr Elliðaey 14. júlí 1867.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.