Ég veit þú kemur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 13:21 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 13:21 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær
ég trúi ekki á orðin þín
ef annað segja stjörnur tvær
Og þá mun allt verða eins og var
sko áður en þú veist, þú veist
og þetta eina sem út af bar
okkar á milli í friði leyst
Og seinna þegar tunglið
hefur tölt um langan veg
þá tölum við um drauminn
sem við elskum þú og ég
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær
og trúi ekki á orðin þín
ef annað segja stjörnur tvær
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Ási í Bæ