Ágúst Sigurhansson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júlí 2016 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júlí 2016 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ágúst Sigurhansson sjómaður fæddist 27. ágúst 1888 í Stóru-Mörk u. V-Eyjafjöllum og drukknaði 14. janúar 1915.
Foreldrar hans voru Sigurhans Ólafsson bóndi í Gerðakoti, síðar verkamaður í Eyjum, f. 12. september 1861 í Stóru-Mörk, d. 26. september 1931, og kona hans Dóróthea Sveinsdóttir húsfreyja, f. 30. október 1864 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 5. mars 1941.

Börn Sigurhans og Dórótheu í Eyjum:
1. Ólafur Ágúst Sigurhansson sjómaður, f. 27. ágúst 1888, drukknaði 14. janúar 1915.
2. Sveinn Sigurhansson vélstjóri, múrari, f. 21. júní 1902, d. 6. desember 1963.
3. Þorbjörg Sigurhansdóttir ráðskona, f. 21. mars 1894, d. 4. mars 1964.
4. Þorbjörn Sigurhansson sjómaður, f. 7. febrúar 1896, d. 13. ágúst 1981.
5. Tómas Karl Sigurhansson skósmiður, f. 21. janúar 1898, d. 24. janúar 1987.
5. Berent Sigurhansson smiður, f. 24. mars 1900, d. 24. desember 1922.
6. Óskar Sigurhansson vélsmiður, f. 29. apríl 1902, d. 1. apríl 1979.
7. Aðalsteinn Sigurhansson sjómaður, f. 27. nóvember 1903, drukknaði 23. janúar 1927.

Ágúst var með foreldrum sínum í Stóru-Mörk 1891 og enn 1901. Hann fluttist með þeim að Gerðakoti u. Eyjafjöllum 1903 og að Bræðraborg 1911, var vinnumaður hjá Magnúsi Þórðarsyni í Dal 1912-dd. 1915.
Ágúst var skipverji hjá Magnúsi í Dal, er bátur hans Fram VE-176 fórst við Urðir 14. janúar 1915.

Ágúst var ókvæntur.
I. Barnsmóðir hans að tveim börnum var Guðný Eyjólfsdóttir lengi vinnukona í Úthlíð, f. 7. júní 1890, d. 10. febrúar 1979.
Börn þeirra:
1. Guðrún Ágústsdóttir, f. 6. september 1910 í Gerðakoti u. Eyjafjöllum, var í Úthlíð með móður sinni 1920 og 1930, kona Ingvars Guðmundar Júlíussonar, síðast á Selfossi, d. 11. maí 1999.
2. Sigríður Ágústsdóttir húsfreyja, f. 5. júní 1912 í Mið-Skála u. Eyjafjöllum, d. 14. október 1996. Hún var kona Einars Sveins Jóhannessonar skipstjóra.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.