Þórdís Guðmundsdóttir (Sælundi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 20:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 20:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Guðmundsdóttir húsfreyja á Sælundi fæddist 29. ágúst 1877 og lést 4. júní 1908.
Foreldrar hennar voru Guðmundur bóndi á Vesturhúsum Þórarinsson og kona hans Guðrún Erlendsdóttir húsfreyja.
Maður Þórdísar (1903) var Jóel Eyjólfsson, fæddur 3. nóvember 1878, dáinn 28. desember 1944. Hún var fyrri kona hans.
Börn þeirra Jóels voru:
1. Þorgeir á Sælundi, f. 15. júní 1903, d. 13. febrúar 1984.
2. Guðmundur Eyjólfur í Háagarði, f. 5. janúar 1907, d. 14. september 1965.

Þórdís var hjá móðursystur sinni Þorgerði Erlendsdóttur á Fögruvöllum 1890, 13 ára, en 1901 var hún með foreldrum sínum á Vesturhúsum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.