Ásgerður Margrét Þorsteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. apríl 2020 kl. 20:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. apríl 2020 kl. 20:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ásgerður Margrét Þorsteinsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ásgerður Margrét Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 22. desember 1945 í Reykjavík.
Foreldrar hennar Þorsteinn Einarsson frá Beigalda í Mýrasýslu, matsveinn, trúboði í Reykjavík, f. 2. júlí 1922, d. 25. nóvember 1975, og kona hans Katrín Hendriksdóttir úr Reykjavík, húsfreyja, f. 4. janúar 1927.

Ásgerður var með foreldrum sínum í æsku, lauk grunnskóla, og gekk í Húsmæðraskólann í Reykjavík 17-18 ára.
Þau Jóhannes giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Brimhólabraut 21, en síðan á Illugagötu 33.
Jóhannes fluttist til Reykjavíkur 1997 vegna starfa sinna og alflutt þangað voru þau 1998. Þau hafa búið á Hrafnhólum 6.

I. Maður Ásgerðar Margrétar, (8. febrúar 1964), er Jóhannes Óskarsson rafvirkjameistari, flokksstjóri, f. 30. október 1940 á Vesturvegi 29.
Börn þeirra:
1. Þorsteinn Jóhannesson verkfræðingur, vinnur hjá Isavia, f. 14. febrúar 1965. Kona hans Dagbjört Eiríksdóttir.
2. Óskar Þór Jóhannesson vélvirki, vinnur við gæslu félagslega illa stæðra barna, f. 19. júlí 1969. Hann býr á Englandi. Kona hans Anne Marie Jóhannesson.
3. Jóhannes Jóhannesson þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, f. 14. október 1988. Kona hans Abegail Jóhannesson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.