Ármann Bjarnfreðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. október 2022 kl. 16:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. október 2022 kl. 16:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ármann Bjarnfreðsson.

Ármann Bjarnfreðsson verkamaður, bóndi, verkstjóri, fiskimatsmaður fæddist 30. mars 1929 á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V.-Skaft. og lést 9. júní 1988.
Foreldrar hans voru Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi, f. 13. september 1889, d. 13. september 1964, og kona hans Ingibjörg Sigurbergsdóttir bónda á Fjósakoti í Meðallandi Einarssonar, húsfreyja, f. 3. nóvember 1893, d. 20. júlí 1945.

Börn Bjarnfreðs og Ingibjargar:
1. Björn Gísli Bjarnfreðsson bóndi í Ormskoti í Fljótshlíð, f. 24. júlí 1913, d. 30. apríl 1980.
2. Vilborg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja á Svanavatni við Stokkseyri, sjúkraliði, f. 19. júní 1915, d. 30. maí 1995.
3. Sigurbergur Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, f. 30. september 1916, d. 8. febrúar 2002.
4. Haraldur Bjarnfreðsson sjómaður, f. 23. desember 1917, fórst 29. janúar 1940.
5. Guðjón Bjarnfreðsson garðyrkjumaður, verkamaður, kvæðamaður í Reykjavík, f. 3. mars 1919, d. 28. janúar 2009.
6. Lárus Bjarnfreðsson málari, f. 18. maí 1920, d. 23. desember 1975.
7. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir alþingismaður, f. 8. ágúst 1921, d. 26. apríl 1994.
8. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, bókavörður, f. 27. desember 1922, d. 4. október 2010.
9. Ólöf Bjarnfreðsdóttir sjúklingur, f. 24. júlí 1924, d. 29. ágúst 2019.
10. Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1925, d. 10. desember 1985.
11. Eygerður Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. janúar 1927, d. 4. apríl 1991.
12. Ármann Bjarnfreðsson bóndi, verkstjóri, fiskimatsmaður í Eyjum, f. 30. mars 1928, d. 9. júní 1988.
13. Aðalsteinn Bjarnfreðsson sjómaður, verslunarmaður, f. 9. júní 1929, d. 9. apríl 2005.
14. Steindór Bjarnfreðsson sjómaður, f. 26. júní 1930, d. 28. september 2014.
15. Valdimar Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, myndlistamaður, f. 16. febrúar 1931, d. 4. maí 2018.
16. Magnús Bjarnfreðsson blaðamaður, útvarpsþulur, f. 9. febrúar 1934, d. 30. ágúst 2012.
17. Sveinn Andrés Bjarnfreðsson, f. 27. ágúst 1935, d. 17. janúar 1941.
18. Ólafur Bjarnfreðsson, f. 28. desember 1936, d. 23. október 2019.
19. Vilmundur Siggeir Bjarnfreðsson verkamaður í Reykjavík, f. 3. september 1939, d. 21. nóvember 1964.
20. Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir, f. 7. september 1942, d. 1. febrúar 1982.

Ármann var hjá foreldrum sínum á Efri-Steinsmýri í Meðallandi til 1934, var fósturbarn á Syðri-Fljótum þar 1934-1942, en þá fór hann til Reykjavíkur. Hann var þar verkamaður, síðan bóndi á Draghálsi í Svínadal, í Hömluholtum í Eyjahreppi á Snæfellsnesi og á Ytri-Bug við Ólafsvík.
Hann flutti til Reykjavíkur og síðan til Eyja 1974, varð verkstjóri og fiskimatsmaður í Hraðfrystistöðinni.
Þau Kristín giftu sig 1949, eignuðust 12 börn. Þau bjuggu að Birkihlíð 20 og þar bjó Ingibjörg dóttir hans líka.

I. Kona Ármanns, (20. mars 1949), var Kristín Óskarsdóttir húsfreyja, f. 27. júlí 1925, d. 22. ágúst 2012.
Börn þeirra:
1. Óskar Ármannsson, f. 22. júní 1946, d. 22. mars 1947.
2. Ingibjörg Dröfn Ármannsdóttir, f. 5. júní 1948. Maður hennar Ingvar Björgvinsson.
3. Björgvin Ármannsson, f. 13. október 1949. Kona hans Hrönn Bergþórsdóttir.
4. Hlynur Þór Ingólfsson, f. 15. nóvember 1950, ættleiddur. Kona hans Dísa Pálsdóttir.
5. Óskar Lúðvík Ármannsson, f. 16. september 1953. Kona hans Þóra Haraldsdóttir.
6. Bjarnfreður Ármannsson, f. 11. mars 1955. Kona hans Sigurlaug Garðarsdóttir.
7. Ægir Örn Ármannsson, f. 29. mars 1956. Kona hans Elín Jóhanna Eiríksdóttir.
8. Anna Jóna Ármannsdóttir, f. 28. ágúst 1957.
9. Guðný Björk Ármannsdóttir, f. 6. júlí 1961.
10. Þórleif Ármannsdóttir, f. 6. janúiar 1963. Maður hennar Frits Carlsen.
11. Erla Dögg Ármannsdóttir, f. 19. júlí 1964. Maður hennar Finnbogi Leifsson.
12. Sigurbergur Ármannsson, f. 2. mars 1968. Kona hans Karítas Valsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ingibjörg.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 17. júní 1988 og 11. september 2012. Minning hjónanna.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.