Sigurbjörg Ásdís Snjólfsdóttir
Sigurbjörg Ásdís Snjólfsdóttir grunnskólakennari, leiðsagnakennari í Reykjanesbæ fæddist 28. desember 1966 í Eyjum.
Foreldrar hennar Steina Kristín Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 30. júní 1945, og Snjólfur Gíslason bifreiðastjóri, rafveitustjóri, f. 3. janúar 1942.
Börn Steinu og Snjólfs:
1. Sigurbjörg Ásdís Snjólfsdóttir, kennari í Reykjanesbæ, f. 28. desember 1966 í Eyjum.
2. Guðríður Snjólfsdóttir, sjúkraliði, f. 13. febrúar 1968 í Eyjum. Maður hennar Þorgils Guðmundsson.
3. Þóra Kristinsdóttir, kennari, starfsráðgjafi, f. 13. júní 1973 á Norðfirði. Fyrrum maður hennar Stefán Magnússon.
Sigurbjörg eignaðist barn með Þresti 1991.
Hún býr í Reykjanesbæ.
I. Barnsfaðir Sigurbjargar Ásdísar er Þröstur Andersson frá Vík í Mýrdal, verktaki, f. 11. október 1965.
Barn þeirra:
1. Steinþór Snær Þrastarson, f. 21. október 1991.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sigurbjörg Ásdís.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.