Sveinsstaðir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

ctr

SVEINSSTAÐIR í EYJUM.
Sveinsstaði byggði Sveinn Jónsson trésmiður 1893. Sveinn var fæddur að Steinum undir Eyjafjöllum 19. april 1862. Kona Sveins var Guðrún Runólfsdóttir frá Grindavík, f. 26. nóv. 1862.
Á myndinni f.v.:
1. Guðrún Runólfsdóttir húsfreyja, með
2. Ársæl Sveinsson (f. 31. des. 1893), son þeirra hjóna, í keltu sér. Ársæll er nú einn af kunnustu útgerðarmönnum hér í Eyjum og er nú forseti bœjarstjórnar Vestmannaeyja.
3. Sveinn Jónsson trésmiður.
4. Sveinn Magnús Sveinsson, kenndur við Völund í Reykjavík og var eigandi hans, f. 19. okt. 1891.
5. Júlíana Sveinsdóttir listmálari, f. 1. júli 1889.
6. Sigurveig Sveinsdóttir húsfreyja, f. 10. jan. 1887.
Fimmta barn þeirra hjóna er Sigurður bifreiðarstjóri og kaupmaður hér í Eyjum. (Blik 1958).

Árið 1953 bjuggu í húsinu Helga Sigurbjörnsdóttir f. 1883, Benedikt Ó Jónsson f. 1924.

Árið 1960 bjuggu í húsinu Aðalbjörg Jónsdóttir og Ólafur Guðmundsson.

Árið 1965 bjuggu í húsinu Magnús Pálsson og Ingunn Vilhjálmsdóttir.

Þegar byrjaði að gjósa bjuggu Gunnar Jónas Jónsson, Ingimundur Axelsson og Steinunn Helga Axelsdóttir í húsinu. Húsið fór undir hraun í gosinu árið 1973.


Heimildir