Mynd:Hjorleifur thora afkomendur.jpg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hjorleifur_thora_afkomendur.jpg(479 × 311 mynddílar, skráarstærð: 50 KB, MIME-gerð: image/jpeg)

Hjörleifur Sveinsson og Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir frá Skálholti eldra við Landagötu 22 (sem fór undir hraun í gosinu). Hér eru þau ásamt börnum sínum þeim Guðbjörgu Hjörleifsdóttur (sem situr á vinstri hlið Hjörleifs), Friðriki Ágústi Hjörleifssyni (Gústa) (í öftustu röð fyrir aftan Hjörleif), Anna Hjörleifs (situr við hlið Þóru á hægri hönd) og loks er það Sveinn Hjörleifsson (þriðji frá vinstri í öftustu röð).

Einnig á myndinni eru tengdabörn þeirra Hjörleifs og Þóru; Sigmundur P. Lárusson maður Önnu (fyrstur í öftustu röð frá vinstri), Aðalheiður Pétursdóttir (Heiða) kona Sveins (fjórða í öftustu röð frá vinstri), Anna Oddgeirsdóttir kona Gústa (sjötta frá vinstri í öftustu röð) og loks Egill Kristjánsson maður Guðbjargar (fyrstur frá hægri í öftustu röð).

Einnig á myndinni eru barnabörn Hjörleifs og Þóru og eru þau: fremsta röð frá vinstri: Sigdís og Hjördís og Lárus (börn Önnu og Sigmundar), Jón Rúnar (sonur Önnu og Gústa) í fangi Þóru, Hjörleifur í fangi Hjörleifs, Guðjón í fangi Guðbjargar, Benedikt (sonur Önnu og Sigmundar), Þóra Sigríður (dóttir Sveins og Heiðu).

Miðröð frá vinstri: Þóra Arnheiður (dóttir Önnu og Sigmundar), Hjörleifur (sonur Sveins og Heiða), Þóra Margrét og Aurora (dætur Önnu og Gústa), Þóra Hjördís (dóttir Egils og Guðbjargar).

Aftasta röð frá vinstri: Þórey (dóttir Sveins og Heiðu) og á endanum hægra megin í fangi Egils er Kristján (sonur Egils og Guðbjargar).

Mynd frá Benedikti Sigmundssyni

Breytingaskrá skjals

Smelltu á dagsetningu eða tímasetningu til að sjá hvernig hún leit þá út.

Dagsetning/TímiSmámyndVíddirNotandiAthugasemd
núverandi6. mars 2006 kl. 23:16Smámynd útgáfunnar frá 6. mars 2006, kl. 23:16479 × 311 (50 KB)Frosti (spjall | framlög)Hjörleifur Sveinsson og Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir frá Skálholti eldra við Landagötu 22 (sem fór undir hraun í gosinu). Hér eru þau ásamt börnum sínum þeim Guðbjörgu Hjörleifsdóttur (sem situr á vinstri hlið Hjörleifs), Frið

Eftirfarandi 2 síður nota þessa skrá:

Lýsigögn