Þórður Jónsson (Bergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. maí 2020 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. maí 2020 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þórður Jónsson.

Þórður Jónsson, Bergi, fæddist 10. júní 1887 á Eyrarbakka og lést 1. febrúar 1939. Þórður fór til Vestmannaeyja árið 1908 og er háseti á Olgu. Árið 1910 byrjar Þórður formennsku með Olgu Esbjerg og er með hana eina vertíð og svo Ásdísi tvær vertíðir. Þá lét hann smíða Enok I og var við það sjálfur því hann var með bestu bátasmiðum í Eyjum. Þann bát var hann með til ársins 1921 en þá smíðaði hann Enok II og var með hann til ársins 1927. Eftir það hætti Þórður formennsku og gaf sig smíðunum.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Frekari umfjöllun

Þórður Jónsson frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, skipstjóri, skipasmiður fæddist 10. júní 1887 og lést 1. febrúar 1939.

Faðir Þórðar var Jón formaður að Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, f. 17. september 1856, d. 8. september 1941, Guðmundsson bónda og formanns á Gamla-Hrauni 1860, f. 10. júlí 1830, d. 21. febrúar 1914, Þorkelssonar bónda í Mundakoti, f. 1802, d. 29. apríl 1880, Einarssonar „ríka“ Hannessonar, og konu Þorkels í Mundakoti, Guðrúnar húsfreyju, f. 1804, d. 8. júní 1863, Magnúsdóttur í Mundakoti Arasonar.
Móðir Jóns á Gamla-Hrauni og kona Guðmundar Þorkelssonar var Þóra húsfreyja, f. 24. október 1830, d. 4. september 1918, Símonardóttir bónda, skipasmiðs og formanns í Brautartungu í Stokkseyrarhreppi, en lengst á Gamla-Hrauni, f. 1801 í Simbakoti, d. 21. nóvember 1881, Þorkelssonar bónda, skipasmiðs og hreppstjóra á Gamla-Hrauni, Jónssonar og konu Þorkels, Valgerðar húsfreyju, f. 1765, d. 7. febrúar 1859, Aradóttur Jónssonar.
Þóra var eftirsótt til hjúskapar. Tyrfingur Snorrason formaður á Stokkseyri var einn þeirra, sem á sóttu, en missti af til Guðmundar Þorkelssonar. Tyrfingur kvæntist ekki. Hann kvað:

Eg á fljóðum fæ ei ást,
finn því hljóður trega,
því sú góða Þóra brást;
það fór slóðalega.

Móðir Þóru og kona Símonar var Sesselja húsfreyja og móðir amk. 15 barna, f. 1801, d. 1859, Jónsdóttir bónda á Ásgautsstöðum, Óseyrarnesi (Nesi), síðast á Selfossi, f. 1767, d. 8. febrúar 1856, Símonarsonar og konu Jóns Símonarsonar, Guðrúnar húsfreyju frá Kakkarhjáleigu (síðar nefnt Hoftún), f. 1769, d. 15. apríl 1837, Snorradóttur, Knútssonar.

Móðir Þórðar á Bergi og kona Jóns á Gamla-Hrauni var Ingibjörg Gíslína húsfreyja á Gamla-Hrauni, f. 1. september 1867, d. 2. apríl 1937, Jónsdóttir bónda á Miðhúsum í Sandvíkurhreppi, f. 12. apríl 1834, d. 19. júní 1872, Jónssonar bónda á Vötnum í Ölfusi, f. 1801, d. 19. febrúar 1865, Þórðarsonar, Jónssonar, og konu Þórðar, Ingveldar Guðnadóttur.
Móðir Jóns á Míðhúsum og kona Jóns á Vötnum var Sigríður húsfreyja, f. 28. maí 1806, d. 25. mars 1868, Gísladóttir bónda og hreppstjóra í Reykjakoti í Ölfusi, f. 1760, d. 27. maí 1840, Guðnasonar, og konu Gísla, Guðríðar húsfreyju, f. 1765 að Sogni í Ölfusi, d. 6. maí 1837, Jónsdóttur.
Móðir Ingibjargar Gíslínu og kona Jóns á Miðhúsum var Aðalbjörg húsfreyja, f. 31. janúar 1830 á Álftanesi, d. 15. október 1917, Eyjólfsdóttir bónda á Brekkuflöt á Álftanesi 1845, f. 29. ágúst 1800, d. 12. mars 1868, Eyjólfssonar, Jónssonar.
Móðir Aðalbjargar og kona Eyjólfs á Brekkuflöt var Ingibjörg húsfreyja, f. 5. desember 1797 á Þórustöðum í Grímsnesi, d. 22. maí 1866, Sturludóttir bónda á Þórustöðum, skírður 19. desember 1750, d. 27. ágúst 1823, Jónssonar.

Börn Jóns Guðmundssonar á Gamla-Hrauni og Ingibjargar Gíslínu Jónsdóttur voru:
1. Vigdís Jónsdóttir húsfreyja í Selkirk í Kanada, f. 27. júní 1885.
2. Þórður Jónsson formaður og skipasmiður á Bergi, f. 10. júní 1887, d. 1. febrúar 1939.
3. Guðmundur Jónsson formaður, skipasmiður á Háeyri, f. 14. október 1888, d. 27. nóvember 1976.
4. Guðrún Aðalbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Tjörn á Stokkseyri, f. 22. október 1889, d. 6. október 1976.
5. Gunnar Marel Jónsson formaður og skipasmiður, f. 6. janúar 1891, d. 7. maí 1979.
6. Magnús Valdimar Jónsson skipasmiður á Bergi, f. 27. október 1892, d. 13. október 1920.
7. Ágúst Jónsson, f. 9. ágúst 1894, d. 4. desember 1905.
8. Ingiríður Dagmar Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 12. ágúst 1895, d. 7. maí 1986.
9. Haraldur Jónsson sjómaður á Bergi, f. 18. nóvember 1899, d. 20. febrúar 1962.
10. Guðni Jónsson prófessor, f. 22. júlí 1901, d. 4. mars 1974. Hann var kennari við unglingaskóla í Eyjum 1926-1927.
11. Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 3. ágúst 1903, d. 1. september 1995.
12. Lúðvík Jónsson bakarameistari, síðar á Selfossi, f. 14. október 1904, d. 21. mars 1983. Hann ólst upp hjá Árna Filippussyni og Gíslínu Jónsdóttur í Ásgarði, en Gíslína var móðursystir hans.
13. Ágústína Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 11. mars 1906, d. 1. nóvember 1989. Hún ólst upp um skeið hjá Þórði á Bergi, en lengst í Ásgarði hjá Árna og Gíslínu.
14. Guðmundur Júníus Jónsson sjómaður í Eyjum, síðar skipstjóri á Akranesi, f. 29. júní 1908, d. 22. ágúst 1972.
15. Þorsteinn Páll Jónsson símavarðstjóri í Reykjavík, f. 15. ágúst 1909, d. 25. júlí 1982.
16. Jónína Helga Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 29. desember 1910, d. 31. janúar 1992.
17. Anna Katrín Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 27. apríl 1912, d. 23. maí 1999.

Móðursystur systkinanna voru:
1. Gíslína Jónsdóttir húsfreyja í Ásgarði, f. 18. apríl 1871, d. 18. júlí 1953.
2. Aðalbjörg Jónsdóttir í Miðey, f. 14. september 1863, d. 2. júlí 1947.

Þórður var formaður og skipasmiður. Hann bjó á Bárustíg 4, Bergi 1910-1917 með konu sinni Jónínu Ástgeirsdóttur. Hún lést 1917, barnlaus. Árið 1918 var Kristín Guðjónsdóttir vinnukona hjá honum með barn þeirra Jónínu Ástu Þórðardóttur og 1924 ól hún honum Bergþóru.
Hann eignaðist barn með Guðrúnu Þórðardóttur 1921 og með Pétrúnu Ólöfu Ágústsdóttur frá Skálanesi 1925, -Sveinbjörgu Ölmu, sem fórst í Keflavíkurbrunanum 1936, á ellefta árinu.
Þórður og Kristbjörg mættust í Eyjum, en fluttust til Siglufjarðar 1927. Þau giftu sig þar, fluttust til Akureyrar á því ári og bjuggu þar til 1935, er þau fluttust til Keflavíkur. Þar bjuggu þau til ársins 1937, er þau fluttust að Vallartúni. Árið 1839 höfðu þau nýlega fest kaup á Skálanesi við Vesturveg, er Þórður lést. Kristbjörg ól Þórði 3 börn á Akureyri og fjórða, Þóru, í Vallartúni að honum látnum.

I. Kona Þórðar, (23. desember 1910), var Jónína Ástgeirsdóttir frá Litlabæ, húsfreyja, f. 4. júlí 1884, d. 8. mars 1917.
Barn þeirra var
1. Andvana stúlkubarn, f. 19. ágúst 1916.

II. Bústýra Þórðar var Kristín Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1889, d. 4. apríl 1982.
Börn þeirra:
2. Jónína Ásta Þórðardóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1918, d. 28. september 1995.
3. Bergþóra Þórðardóttir húsfreyja, f. 16. mars 1924, d. 16. júlí 2004.

III. Barnsmóðir Þórðar var Sigríður Guðmundsdóttir frá Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, síðar húsfreyja í Hamragörðum u. V-Eyjafjöllum, vinnukona hjá honum frá 1909, f. 13. ágúst 1886, d. 19. júní 1956.
Barn þeirra var
4. Jóhann Gunnar Þórðarson, f. 9. mars 1919, d. 9. febrúar 1920.

IV. Barnsmóðir Þórðar var Guðrún Þórðardóttir verkakona, þá í Pálsbúð, f. 31. ágúst 1882, d. 1. mars 1978.
Barn þeirra var
5. Jón Sigurðsson Þórðarson skipasmiður, f. 17. júní 1921, d. 7. maí 2017.

V. Barnsmóðir Þórðar var Petrún Ólöf Ágústsdóttir frá Skálanesi, (nefnd Petrína við jarðsetningu), síðast á Svalbarðseyri við Eyjafjörð, f. 14. maí 1898 á Nesi í Norðfirði, d. 5. mars 1985.
Barn þeirra var
6. Sveinbjörg Alma Þórðardóttir, f. 22. desember 1925, d. 28. mars 1936 af Keflavíkurbrunanum.

VI. Kona Þórðar, (1927), var Kristbjörg Stefánsdóttir húsfreyja, síðar í Skálanesi, f. 12. júlí 1896, d. 8. mars 1984.
Börn þeirra voru:
7. Álfheiður Lára Þórðardóttir frá Skálanesi, húsfreyja, f. 26. febrúar 1928, d. 28. desember 2005.
8. Oddný Guðbjörg Þórðardóttir frá Skálanesi, húsfreyja, f. 15. ágúst 1929, d. 23. október 1998.
9. Ingibjörg Jónína Þórðardóttir frá Skálanesi, húsfreyja, f. 11. ágúst 1932.
10. Þóra Þórðardóttir frá Skálanesi, húsfreyja, f. 16. apríl 1939.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.