Þórunn Elíasdóttir (Steinholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. maí 2021 kl. 17:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. maí 2021 kl. 17:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þórunn Elíasdóttir.

Þórunn Elíasdóttir húsfreyja í Steinholti, húsfreyja fæddist 1. desember 1916 í Reykjavík og lést 29. júlí 1990 á Vífilsstöðum.
Foreldrar hennar voru Elías Nikulásson verkamaður í Reykjavík, síðan bóndi á Bala, Háarima, Tjörn og Borgartúni í Djúpárhreppi í Rang., f. 29. júní 1881 í Norður-Áskoti í Ásahreppi, d. 25. febrúar 1959 í Keflavík, og kona hans Kristín Mensaldersdóttir frá Moldartungu í Holtum, húsfreyja, f. 7. júlí 1877 í Háholti á Skeiðum, Árn., d. 1. apríl 1965.

Systir Þórunnar í Eyjum var
1. Hrefna Elíasdóttir húsfreyja, f. 24. febrúar 1920, d. 3. júní 2006. Maður hennar var Jóhann Ingvar Gíslason.

Þórunn var með foreldrum sínum í æsku, í Reykjavík, á Bala og Háarima í Djúpárhreppi.
Hún leitaði sér vinnu í Eyjum og þar kynntust þau Baldvin.
Þórunn fæddi barn með Baldvini á Bala 1936 og á Háarima 1938.
Þau giftu sig 1937, voru á Háarima 1937 og 1938, hann vinnumaður.
Þau voru á Staðarfelli 1940, fluttu að Steinholti 1943. Þar bjuggu þau, en byggðu Illugagötu 7 í lok sjötta áratugarins og bjuggu þar við Gos 1973.
Þau fluttu til Lands, byggðu Arnartanga 4 í Mosfellsbæ og bjuggu þar.
Þórunn lést 1990 og Baldvin 2006.

I. Maður Þórunnar, (16. maí 1937), var Baldvin Skæringsson sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, skipstjóri, smiður, f. 30. ágúst 1915, d. 22. febrúar 2006.
Börn þeirra:
1. Kristín Elísa Baldvinsdóttir húsfreyja, starfsmaður Íslandspósts, f. 19. ágúst 1936 á Bala í Djúpárhreppi, d. 19. júlí 2003. Maður hennar Hörður Runólfsson.
2. Elías Baldvinsson slökkviliðsstjóri, f. 1. júní 1938 á Háarima í Djúpárhreppi, d. 16. september 2003. Kona hans Halla Guðmundsdóttir, látin.
3. Baldur Þór Baldvinsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 19. júní 1941 á Staðarfelli. Fyrrum kona hans Arndís Ármann Steinþórsdóttir. Kona hans Hugrún Hlín Ingólfsdóttir, látin.
4. Kristinn Skæringur Baldvinsson húsasmíðameistari í Eyjum, f. 29. júní 1942 í Steinholti. Kona hans Sigríður Mínerva Jensdóttir.
5. Ragnar Þór Baldvinsson bifvélavirki, slökkviliðsstjóri í Eyjum, f. 31. desember 1945 í Steinholti. Kona hans Anna Jóhannsdóttir.
6. Birgir Þór Baldvinsson grunnskólakennari í Reykjavík, f. 15. janúar 1952 í Steinholti. Kona hans Halldóra N. Björnsdóttir.
7. Hrefna Baldvinsdóttir húsfreyja, launafulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ, f. 23. janúar 1954 í Steinholti. Maður hennar Snorri Þ. Rútsson.
8. Baldvin Gústaf Baldvinsson sagnfræðingur, framkvæmdastjóri hjá Sea Food, dótturfyrirtæki Samherja í Hull, f. 30. ágúst 1957. Kona hans Anna Gunnlaugsdóttir.
9. Hörður Baldvinsson safnstjóri Byggðasafns Vestmannaeyja, f. 25. nóvember 1961. Kona hans Bjarney Magnúsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Hrefna.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 3. ágúst 1990. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.