Þórdís Vigfúsdóttir (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 17:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 17:20 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Vigfúsdóttir húsfreyja í Rimakoti í A-Landeyjum, síðar á Miðhúsum í Eyjum, fæddist 1744 á Klasbarða í V-Landeyjum og lést 1. janúar 1840.
Faðir hennar var Vigfús bóndi á Eystri-Klasbarða, f. 1706, Guðmundsson. (Ætt ókunn).
Móðir Þórdísar var Margrét húsfreyja á Álfhólum, f. 1719, Guðmundsdóttir bónda á Álfhólum og Klasbarða, f. 1682, d. 1729, Gíslasonar bónda á Vestri-Klasbarða 1703, Árnasonar, og konu Gísla Árnasonar, Margrétar húsfreyju, f. 1645, Guðmundsdóttur.
Móðir Margrétar Guðmundsdóttur á Álfhólum var Sigríður húsfreyja, f. 1685, Hróbjartsdóttir.

Þórdís og Guðmundur bjuggu í Rimakoti a.m.k. 1775 og 1779, en voru komin á Vilborgarstaði í Eyjum 1787 og voru þar enn 1789. Þau voru í Ömpuhjalli 1791-1792 og á Miðhúsum 1800 og 1801 (sögð Helgadóttir 1801).
Við manntal 1816 var hún ekkja í Stakkagerði hjá Guðfinnu dóttur sinni.
Við manntal 1835 var hún hjá sr. Tómasi syni sínum í Villingaholti.
Hún lést 1840.

Maður Þórdísar var Guðmundur Bárðarson, f. 1745, d. 1. júlí 1813.
Börn Þórdísar og Guðmundar:
1. Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja á í Háagarði, f. 1772, d. 10. ágúst 1843, gift Þorvaldi Gíslasyni.
2. Guðfinna Guðmundsdóttir húsfreyja og ljósmóðir í Stakkagerði, f. 1776, d. 27. júní 1832, gift Bergi Brynjólfssyni.
3. Tómas Guðmundsson prestur í Villingaholti í Flóa, f. 25. nóvember 1779, d. 17. ágúst 1855, giftur fyrr Halldóru Aradóttur prests Guðlaugssonar, síðar Guðlaugu Jónsdóttur frá Unnarholti í Hreppum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson og fleiri. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.