Þórdís Magnúsdóttir (Dvergasteini)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. nóvember 2019 kl. 16:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. nóvember 2019 kl. 16:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Þórdís Magnúsdóttir (Dvergasteini)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Magnúsdóttir, f. 15. september 1917 í Dvergasteini, d. 23. apríl 1939.
Foreldrar hennar voru Magnús Magnússon frá Geitagili í Örlygshöfn, skipasmiður í Dvergasteini og á Bjarmalandi, f. 6. október 1882, d. 22. október 1961 og k.h. Oddný Erlendsdóttir frá Skíðbakka í A-Landeyjum, húsfreyja, f. 11. október 1883, d. 9. ágúst 1969.
Börn Oddnýjar og Magnúsar:
1. Hulda Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 29. júní 1913 í Ólafshúsum, d. 6. nóvember 1998.
2. Marta Sonja Magnúsdóttir, húsfreyja, saumakona, gangavörður, f. 19. nóvember 1914 á Ingólfshvoli, d. 13. október 2010.
3. Magnús Adolf Magnússon, bifvélavirki, býr í Kópavogi, f. 20. júlí 1916 í Dvergasteini, d. 25. desember 1996.
4. Þórdís Magnúsdóttir vinnukona í Reykjavík, f. 15. september 1917 í Dvergasteini, d. 23. apríl 1939.
5. Jórunn Lilja Magnúsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 5. desember 1919 í Dvergasteini, d. 14. febr. 2008.
6. Erlendína Guðrún Magnúsdóttir, f. 18. júní 1921 í Dvergasteini, d. 21. september 1922.
7. Erlendur Magnússon verkamaður, sjómaður, útgerðarmaður í Reykjavík, f. 13. mars 1923 á Bjarmalandi, d. 9. október 2003.
8. Guðbjört Magnúsdóttir húsfreyja, gangavörður í Reykjavík, f. 31. maí 1924 á Bjarmalandi, d. 27. júlí 2019.
9. Elísabet Fjóla Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 24. nóvember 1925 á Bjarmalandi, d. 28. ágúst 2004. Hún varð kjörbarn Helgu Eggertsdóttur húsfreyju og Kristófers Péturs Eggertssonar skipstjóra á Akranesi.
10. Fanney Magnúsdóttir húsfreyja, verkakona í Reykjavík, f. 3. mars 1928 á Bjarmalandi, d. 4. október 2013.

Þórdís var með foreldrum sínum í æsku, í Dvergasteini og á Bjarmalandi.
Hún fluttist til Reykjavíkur, var við barnagæslu hjá Huldu systur sinni 1939, er eldur kviknaði út frá ofni. Hún skaðbrenndist og hlaut bana af.

Morgunblaðið: ,,Það slys vildi til í gærmorgun um 10 leytið á Laugavegi 59, að eldur kom upp í fötum stúlku, Þórdísar Magnúsdóttur og skaðbrenndist hún um allan líkaman. Þórdís mun hafa ætlað að glæða eld í ofni með því að hella olíu í eldinn en við það blossaði eldurinn upp og læsti sig í föt stúlkunnar. Þórdís var ein heima á hæðinni þegar slysið vildi til og hljóp niður stiga. Guðjón Einarsson prentari sem býr þarna í húsinu, varð var við stúlkuna og tókst að slökkva eldinn í fötum hennar. Brenndist hann töluvert á höndum við það. Þórdís var flutt á Landspítalann og liggur hún þar. Farið var með Guðjón á Landakotsspítala, þar sem bundið var um sár hans. Litlar skemmdir urðu á húsinu en þó brann dálítið inni í herberginu þar sem eldurinn kom upp. Slys þetta ætti að verða örðum til varnaðar.“
(Mbl. 22. apríl 1939).

,,Konan sem brenndist í fyrradag látin.‘‘
,,Þórdís Magnúsdóttir, sem brenndist í fyrradag, er eldur kom upp á Laugavegi 59, lést af brunasárum sínum á Landspítalanum í fyrrinótt. Sár hennar voru hvergi djúp, eins og sagt var frá í blaðinu í gær, en hún brenndist svo mikið um allan líkamann að ekki var hægt að bjarga lífi hennar.‘‘
(Mbl. 23. apríl 1939)


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.