Þuríður Þorkelsdóttir (Sandprýði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. maí 2020 kl. 16:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. maí 2020 kl. 16:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Þuríður Þorkelsdóttir (Sandprýði)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þuríður Þorkelsdóttir frá Sandprýði, ræstitæknir, forstöðumaður fæddist 14. nóvember 1910 og lést 3. ágúst 1981.
Foreldrar hennar voru Þorkell Þórðarson frá Ormskoti í Fljótshlíð, sjómaður, verkamaður, f. 7. desember 1872, d. 14. júlí 1945, og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir frá Tungu í Fljótshlíð, húsfreyja, f. 3. júlí 1884, d. 10. desember 1951.

Börn Guðbjargar og Þorkels:
1. Georg Þorkelsson skipstjóri, f. 4. ágúst 1906 á Gjábakka, d. 28. desember 1983.
2. Guðjón Þorkelsson skipstjóri, f. 12. september 1907 í Sandprýði, d. 8. desember 1982.
3. Þuríður Þorkelsdóttir ræstitæknir, forstöðumaður, f. 14. nóvember 1910 í Sandprýði, d. 3. ágúst 1981.
4. Helga Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 11. nóvember 1913 í Sandprýði, síðast í Grindavík, d. 22. september 1980.
5. Húnbogi Þorkelsson vélvirkjameistari, f. 7. janúar 1916 í Sandprýði, d. 9. apríl 2002.
6. Bernódus Þorkelsson skipstjóri, f. 3. júní 1920 í Sandprýði, d. 11. febrúar 1957.
7. Aðalbjörg Þorkelsdóttir húsfreyja, starfsmaður Íþróttamiðstöðvarinnar, f. 5. mars 1924 í Sandprýði, d. 16. september 2010.
Fósturbarn Guðbjargar og Þorkels var
8. Helga Árnadóttir Bachmann húsfreyja, f. 26. júlí 1931, d. 16. nóvember 1999, en hún var dóttir Þuríðar dóttur þeirra.

Þuríður var með foreldrum sínum í æsku, þvottastúlka, leigjandi á Kirkjuvegi 20 1930, starfsmaður á Sjúkrahúsinu 1934, þvottakona á Þingeyri 1940. Þuríður var fyrsti forstöðumaður þvottahúss bæjarins.

I. Barnsfaðir Þuríðar var Árni Ingimundur Helgason Bachmann sjómaður, vélstjóri, síðast í Njarðvík, f. 23. september 1909, d. 18. febrúar 1988.
Barn þeirra:
1. Helga Árnadóttir Bachmann húsfreyja, f. 26. júlí 1931 á Sjúkrahúsinu, d. 16. nóvember 1999. Maður hennar var Guðfinnur Sigurjónsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.