Þuríður Magnúsdóttir (Varmahlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. ágúst 2015 kl. 14:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. ágúst 2015 kl. 14:11 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Eiríkur Pálsson og Þuríður Magnúsdóttir.
Hjónin Eiríkur Pálsson og Þuríður Magnúsdóttir frá Varmahlíð.

Þuríður Magnúsdóttir fyrrverandi húsmóðir að Kraga á Rangárvöllum, síðar í Varmahlíð í Eyjum, fæddist 28. apríl 1873 og lézt 19. september 1951 í Eyjum.

Ætt og uppruni

Foreldrar hennar voru Magnús bóndi í Litlamel í Þykkvabæ í Rangárvallasýslu, f. 24. júní 1824, d. 26. júní 1905, Sigurðar bónda á Háfi þar, f. 23. febr. 1790, d. 18. okt. 1861, Sigurðssonar og kona hans Sólrún húsmóðir, f. 24. maí 1829, d. 7. marz 1890, Felix bónda í Mel í Þykkvabæ, f. 29. okt. 1805, d. 4. apríl 1876, Felixsonar.
Þuríður var húsmóðir í Kraga á Rangárvöllum frá 1893-1947, er hún fluttist til Eyja með Eiríki og dvaldi í Varmahlíð hjá dóttur sinni Pálínu.

Fjölskylda

Þuríður giftist 29. maí 1891 Eiríki Pálssyni, f. 1866. Börn þeirra voru:

  • Helga bústýra, f. 12. des. 1892, d. 26. okt. 1961,
  • Margrét húsfreyja, f. 13. des. 1893, d. 8. apríl 1966,
  • Pálína, f. 10. apríl 1895, d.13. janúar 1983
  • Sigríður húsfreyja, f. 15. júní 1897, d. 1. júlí 2001,
  • Sólrún, f. 16. febr. 1899, d. 10. jan. 1989,
  • Magnús, f. 2. maí 1902, d. 26. sept. 1960,
  • Sigurbergur, f. 5. maí 1907, d. 26. s. mán.,
  • Sigríður Lilja húsfreyja, f. 6. nóv. 1910, d. 18. júní 2001.

Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.