Þorbjörn Sigurhansson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. janúar 2016 kl. 18:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. janúar 2016 kl. 18:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Þorbjörn Sigurhansson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorbjörn Sigurhansson sjómaður, vélstjóri fæddist 7. febrúar 1896 í Stór-Mörk u. V-Eyjafjöllum og lést 13. ágúst 1981.
Foreldrar hans voru Sigurhans Ólafsson bóndi í Gerðakoti u. Fjöllunum, síðar verkamaður í Eyjum, f. 12. september 1861 í Stóru-Mörk, d. 26. september 1931, og kona hans Dóróthea Sveinsdóttir húsfreyja, f. 30. október 1864 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 5. mars 1941.

Börn Sigurhans og Dórótheu í Eyjum:
1. Ólafur Ágúst Sigurhansson sjómaður, f. 27. ágúst 1888, drukknaði 14. janúar 1915.
2. Sveinn Sigurhansson vélstjóri, múrari, f. 21. júní 1902, d. 6. desember 1963.
3. Þorbjörg Sigurhansdóttir ráðskona, f. 21. mars 1894, d. 4. mars 1964.
4. Þorbjörn Sigurhansson sjómaður, f. 7. febrúar 1896, d. 13. ágúst 1981.
5. Tómas Karl Sigurhansson skósmiður, f. 21. janúar 1898, d. 24. janúar 1987.
5. Berent Sigurhansson smiður, f. 24. mars 1900, d. 24. desember 1922.
6. Óskar Sigurhansson vélsmiður, f. 29. apríl 1902, d. 1. apríl 1979.
7. Aðalsteinn Sigurhansson sjómaður, f. 27. nóvember 1903, drukknaði 23. janúar 1927.

Þorbjörn var tökubarn í Mið-Mörk 1901, vinnumaður þar 1910. Hann fluttist til Eyja frá Stóru-Mörk 1916 og bjó hjá foreldrum sínum í Bræðraborg, hjá þeim í Steinum 1918, með þeim í Brimnesi 1930.
Hann fluttist í Njarðvíkur 1931 og vann þar við frystihús Eggerts Jónssonar frá Nautabúi. Þau Málfríður giftu sig 1935 og eignuðust 2 börn, Sigurhans og Petu Ásu.
Um 1944 fluttust þau á Seltjarnarnes og þar vann Þorbjörn við Frystihús Ísbjarnarins hjá Ingvari Vilhjálmssyni til starfsloka.
Þorbjörn bjó síðast á Skólabraut 7 á Seltjarnarnesi. Hann lést 1981, var jarðsettur í Njarðvík.

Kona Þorbjörns, (1935), var Málfríður Helgadóttir húsfreyja frá Holti í Álftaveri, f. 9. júní 1907 í Holti, d. 6. febrúar 1998. Foreldrar hennar voru Helgi Brynjólfsson bóndi, f. 23. mars 1878, d. 10. september 1949 og kona hans Guðlaug Einarsdóttir húsfreyja, f. 15. febrúar 1874, d. 6. janúar 1962.
Börn þeirra:
1. Sigurhans Þorbjörnsson vélfræðingur, f. 1. desember 1931.
2. Peta Ása Þorbjörnsdóttir húsfreyja, f. 7. janúar 1938, d. 17. janúar 1994.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigurhans Þorbjörnsson.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.