Þorbjörg Sigurðardóttir (Péturshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. febrúar 2021 kl. 16:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. febrúar 2021 kl. 16:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja fæddist 22. febrúar 1895 í Dölum og lést 9. júní 1948.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson bóndi, sjómaður og smiður, síðar í Akurey, f. 25. janúar 1865, d. 8. desember 1914, og kona hans Hildur Eiríksdóttir húsfreyja, f. 8. janúar 1862, d. 8. mars 1923.

Þorbjörg var með móður sinni í Vanangri 1895.
Foreldrar hennar fluttust til Austfjarða 1896, en komu henni í fóstur hjá Önnu Benediktsdóttur ljósmóður í Vanangri. Þar var hún næstu árin og síðan hjá henni í Péturshúsi, sem var nýtt nafn á Vanangri. Þar var hún tökubarn 1901 og enn 1907, en vinnuhjú á Heiði 1910 og 1911.
Hún bjó með Sigurði Bjarnasyni á Litla-Hrauni 1919, á Háeyri 1920, á Vesturhúsum 1921, í Bræðratungu 1922, í Eyvindarholti/Blómsturvöllum 1923, síðar og framvegis á Brekastíg 23.
Þorbjörg lést 1948.

I. Sambýlismaður Þorbjargar var Sigurður Bjarnason sjómaður, f. 25. ágúst 1895, d. 13. ágúst 1981.
Börn Þorbjargar og Sigurðar:
1. Andvana stúlka, f. 26. desember 1917.
2. Anna Ester Sigurðardóttir, f. 18. nóvember 1919, d. 19. janúar 1980.
3. Sigurður Hilmar Sigurðsson, f. 26. apríl 1921, d. 27. september 2014.
4. Solveig Sigurðardóttir, f. 19. desember 1923, d. 7. desember 1994.
5. Engilbert Ottó Sigurðsson, f. 14. maí 1931.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.