Þorbjörg Sigurhansdóttir (Brimnesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. janúar 2016 kl. 16:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. janúar 2016 kl. 16:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorbjörg Sigurhansdóttir vinnukona, síðan ráðskona á Brimnesi fæddist 21. mars 1894 í Stóru-Mörk u. V-Eyjafjöllum og lést 4. mars 1964 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Sigurhans Ólafsson bóndi í Gerðakoti u. Fjöllunum, síðar verkamaður í Eyjum, f. 12. september 1861 í Stóru-Mörk, d. 26. september 1931, og kona hans Dóróthea Sveinsdóttir húsfreyja, f. 30. október 1864 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 5. mars 1941.

Börn Sigurhans og Dórótheu í Eyjum:
1. Ólafur Ágúst Sigurhansson sjómaður, f. 27. ágúst 1888, drukknaði 14. janúar 1915.
2. Sveinn Sigurhansson vélstjóri, múrari, f. 21. júní 1902, d. 6. desember 1963.
3. Þorbjörg Sigurhansdóttir ráðskona, f. 21. mars 1894, d. 4. mars 1964.
4. Þorbjörn Sigurhansson sjómaður, f. 7. febrúar 1896, d. 13. ágúst 1981.
5. Tómas Karl Sigurhansson skósmiður, f. 21. janúar 1898, d. 24. janúar 1987.
5. Berent Sigurhansson smiður, f. 24. mars 1900, d. 24. desember 1922.
6. Óskar Sigurhansson vélsmiður, f. 29. apríl 1902, d. 1. apríl 1979.
7. Aðalsteinn Sigurhansson sjómaður, f. 27. nóvember 1903, drukknaði 23. janúar 1927.

Þorbjörg fluttist að Bræðraborg 1911 með foreldrum sínum, að Steinum 1918, að Brimnesi 1924 og þar var hún enn með móður sinni 1940, ráðskona þar hjá bræðrum sínum, Óskari og Karli 1945.
Hún átti síðast heima á Brimnesi og lést 1964.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.