Óskar Eyjólfsson (Laugardal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. september 2018 kl. 11:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. september 2018 kl. 11:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Óskar Eyjólfsson á Óskar Eyjólfsson (Laugardal))
Fara í flakk Fara í leit
Óskar og Ásta með Þóru.

Óskar Eyjólfsson fæddist 10. janúar 1917 og lést 25. febrúar 1953. Hann var formaður á Tjald VE 225 og á Guðrúnu. Óskar varð aflakóngur þrjú ár í röð 1950, 51 og 52. Óskar fórst með Guðrúnu.

Kona hans var Ásta Þórðardóttir. Dóttir þeirra var Þóra.

Loftur Guðmundsson samdi formannsvísu um Óskar:

Þá er aldan iðukvik
og æðiris á faldi
ef Óskar hikar augnablik
út til miða á Tjaldi.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Óskar:

Guðrúnu á grimman sjá
gildur Óskar setur.
Kóngur afla kappinn sá
kallast hér í vetur.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.