Ólöf Ólafsdóttir (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. mars 2016 kl. 19:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. mars 2016 kl. 19:08 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja í Dölum fæddist 1838 í Jórvík í Álftaveri, V-Skaft. og lést 23. janúar 1920 á Syðri-Fljótum í Meðallandi.
Foreldrar hennar voru Ólafur Jónsson bóndi, f. 26. júní 1799 á Leiðvelli í Meðallandi og kona hans Ástríður Þorbjörnsdóttir húsfreyja frá Dalahjalli, f. 22. september 1799 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 29. apríl 1883 í Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum.

Hún fylgdi foreldrum sínum framan af ævi, var vinnukona 1857-1862, húsfreyja í Nýjabæ í V-Skaft. 1862-1864.
Ólöf og Jón fluttust að Helgabæ 1864 ásamt barni sínu Jóhönnu. Þar voru þau tómthúsfólk næstu árin. Þar eignuðust þau Ólínu í lok ársins. Þau voru húsfólk í Dölum 1867-dd. Jóns. Í Dölum fæddust þeim Önundur og Ásbjörn. Önundur dó 1872, nær 4 ára.
Ólöf bjó í Dölum næstu árin eftir dauða Jóns. Hún eignaðist Unu 1878 með Jóni Magnússyni, þá kvæntum húsmanni á Kirkjubæ og fór frá Dölum í Skaftafellssýslu á því ári með börnin Jóhönnu, Ásbjörn og Unu, en Ólína var fósturbarn í Presthúsum.
Ólína var vinnukona víða í V-Skaft. til 1901, en lausakona 1901-æviloka 1920.

I. Maður Ólafar, (15. júlí 1861) var Jón Jónsson húsmaður í Dölum, f. 29. september 1837 á Kvíabóli í Mýrdal, drukknaði 13. mars 1874, er Gaukur fórst við Klettsnef.
Börn Ólafar og Jóns í Dölum:
1. Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 26. ágúst 1862 í Nýjabæ í Meðallandi, fluttist til Vesturheims 1902.
2. Ólína Jónsdóttir vinnukona, f. 24. desember 1864, d. 25. ágúst 1938. Hún fluttist til Vesturheims 1888.
3. Önundur Jónsson, f. 15. mars 1868, d. 19. janúar 1872 „úr andarteppuhósta“.
4. Ásbjörn Jónsson bóndi á Syðri-Fljótum í Meðallandi, f. 6. mars 1871 í Dölum, d. 15. nóvember 1922.

II. Barn Ólafar með Jóni Magnússyni, kvæntum húsmanni á Kirkjubæ:
5. Una Jónsdóttir skáldkona á Sólbrekku, f. 31. janúar 1878, d. 29. febrúar 1960.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.