Óli Jónsson (Hólmgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. apríl 2016 kl. 21:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. apríl 2016 kl. 21:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Óli Jónsson (Hólmgarði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Óli Jónsson frá Ólafsfirði, sjómaður í Hólmgarði fæddist 27. júní 1909 og lést 30. júlí 1981.
Foreldrar hans voru Jón Friðrik Bergsson sjómaður á Ólafsfirði, f. 12. maí 1883, d. 29. mars 1942 og kona hans Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, f. 20. september 1887, d. 27. nóvember 1949.
Fósturforeldrar Óla voru Ólafur Ingimundarson í Nýjabæ á Ólafsfirði, f. 28. mars 1853 og kona hans Ólöf Friðbjarnardóttir húsfreyja, f. 1863.

Systkini Óla í Eyjum voru:
1. Halldóra Jónsdóttir, f. 17. ágúst 1924, kona Halldórs Jónssonar í Brautarholti.
2. Jakobína Jónsdóttir, kona Júlíusar Sigurðssonar á Skjaldbreið.
3. Bergur Ragnar Jónsson öryrki, síðast í Hraunbúðum, f. 22. maí 1929, d. 8. júlí 1996.
Einnig var Guðfinna Jónsdóttir húsfreyja á Ólafsfirði, síðari kona Helga Kristins Halldórssonar, systir þeirra.

Þau Óli og Jóna mættust á Ólafsfirði, en þangað fór Jóna á vit Ragnhildar systur sinnar.
Þau fluttust til Eyja, voru komin að Miðhúsum við fæðingu Önnu Maríu 1932. Þau dvöldu á Ólafsfirði 1934 við fæðingu Magnúsar, voru komin að Miðhúsum aftur 1937 við fæðingu Sigurbjarnar Friðriks.
Þau bjuggu um nokkurra ára skeið í Hólmgarði, en síðan við Brekastíg 6 (Heiðarbýli).

Kona Óla var Jóna Gíslína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 6. júní 1915, d. 19. nóvember 1995.
Börn þeirra:
1. Anna María Óladóttir, f. 12. apríl 1932.
2. Guðjón Magnús (Ólason) Einarsson, f. 11. mars 1934. Kjörforeldrar hans voru Einar Brynjólfsson og Margrét Einarsdóttir.
3. Sigurbjörn Friðrik Ólason, f. 28. júní 1937.
4. Einar Marvin Ólason, f. 2. maí 1944, d. 5. nóvember 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.