Óli Einar Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. janúar 2018 kl. 20:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. janúar 2018 kl. 20:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Óli Einar Andersen Adolfsson frá Brautarholti, bifreiðastjóri, rúturekandi fæddist 7. mars 1941 í Ytri-Sólheimum í Mýrdal.
Foreldrar hans voru Adolf Jensson Andersen bóndi og smiður, f. 5. desember 1913 á Geirseyri í Patreksfirði, d. 20. september 1987, og kona hans Kristjana Geirlaug Einarsdóttir frá Ytri-Sólheimum í Mýrdal, húsfreyja, f. 29. júní 1919, d. 2. febrúar 2002.

Afabræður Óla Einars voru:
1. Pétur Andersen formaður, ættfaðir Andersen-ættar í Eyjum, og
2. Svend Ove Andersen.
Föðursystkini Óla Einars:
3. Jenný Andersen.
4. Elna Andersen.
5. Torfi Alexander (Andersen) Helgason sjómaður.
Synir Svends Ove afabróður Óla Einars:
6. Erling Andersen.
7. Arnar Andersen.

Óli Einar fluttist með foreldrum sínum til Eyja nýfæddur, bjó hjá þeim í Brautarholti. Hann fluttist með þeim að Ytri-Sólheimum 1944 og síðar að Önundarhorni u. Eyjafjöllum. Þar var hann 1960.
Hann var verkamaður í Eyjum 1963 og bjó með Valgerði að Herjólfsgötu 9. Þau eignuðust Ernu Ólöfu þar.
Óli Einar vann að bílaviðgerðum á Hellu og á Þorvaldseyri u. Eyjafjöllum. Síðar gerðist hann rútueigandi og -rekandi.
Þau Valgerður eignuðust þrjú börn, en skildu.
Óli Einar býr á Eyrabakka með Elenu Garcia húsfreyju frá Spáni.

I. Kona Óla Einars, (skildu), var Valgerður Ragnarsdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1938.
Börn þeirra:
1. Erna Ólöf Óladóttir húsfreyja, útgerðarmaður í Mjóafirði eystra, f. 7. apríl 1963 í Eyjum. Maður hennar er Sævar Egilsson útgerðarmaður.
2. Ragnar Ólason bankastarfsmaður í Reykjavík, f. 17. júlí 1964, ókvæntur.
3. Kolbrún Óladóttir húsfreyja, verkstjóri í Eyjum, f. 19. ágúst 1965. Maður hennar er Finnbogi Finnbogason vinnuvélastjóri.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.