Ólafur Þórðarson (Suðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. september 2019 kl. 16:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. september 2019 kl. 16:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ólafur Þórðarson á Ólafur Þórðarson (Suðurgarði))
Fara í flakk Fara í leit
Ólafur til vinstri ásamt Þórði Stefánssyni frá Haga.

Ólafur Þórðarson fæddist 30. janúar 1911 og lést 1. janúar 1996. Hann var kvæntur Önnu Svölu Johnsen og áttu þau þrjú börn; Árna Óla, Jónu og Margréti Mörtu en Ólafur átti einnig tvær dætur af fyrra hjónabandi. Þau áttu heima í Suðurgarði en þar áttu móðurforeldrar og foreldrar Önnu Svölu heima.

Ólafur var rafvirkjameistari en stundaði einnig sjó. Eftir að hann kláraði nám í rafvirkjun sigldi hann um heimsins höf og var það mikil lífsreynsla, þar sem nálægðin við seinni heimsstyrjöldina var stundum æði mikil. Er hann kom til Eyja vann hann sem vélstjóri, bæði í landi og á sjó. Þegar hann hætti á sjó hóf hann störf hjá Fiskimjölsverksmiðjunni í Vestmannaeyjum og undi vel hag sínum þar.

Hjónin í Suðurgarði

Ólafur var í mörg ár virkur félagi í Vestmannaeyjadeild Gideonfélagsins. Ólafur var þekktur lundaveiðimaður í Stórhöfða. Einn daginn veiddi hann 1.013 fugla í höfðanum, frá 10 um morguninn fram á kvöldmat.

Myndir