Ólafur Markússon (Fagurhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. mars 2020 kl. 11:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2020 kl. 11:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Jón Markússon frá Fagurhól, sjómaður fæddist þar 5. júní 1916 og fórst 6. febrúar 1938.
Foreldrar hans voru Markús Sæmundsson, verkamaður, sjómaður, útgerðarmaður, f. 27. desember 1885 í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð, d. 5. apríl 1980, og kona hans Guðlaug Ólafsdóttir frá Skarðshlíð u. Eyjafjöllum, f. þar 3. júní 1889, d. 27. október 1970.

Börn Guðlaugar og Markúsar:
1. Guðný Svava Markúsdóttir húsfreyja, f. 14. september 1914 á Skaftafelli, d. 9. febrúar 1941.
2. Ólafur Jón Markússon sjómaður, f. 5. júní 1916 í Fagurhól, fórst 6. febrúar 1938.
3. Ásta Markúsdóttir, f. 26. ágúst 1919, d. 14. janúar 1923.
4. Ástþór Sveinn Markússon sjómaður, forstöðumaður, f. 18. desember 1923, d. 14. júlí 2011.
5. Viktor Markússon, f. 2. febrúar 1930, d. 26. nóvember 1930.

Ólafur var með foreldrum sínum til dánardægurs, varð sjómaður og reri á vélbátnum Víði, er hann fórst á vetrarvertíðinni 1938. Með honum fórust bræðurnir Gunnar Guðjónsson og Gísli Guðjónsson frá Kirkjubæ.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.