Ásþór Guðmundsson (Heiðarbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. apríl 2019 kl. 10:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. apríl 2019 kl. 10:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ásþór Guðmundsson frá Heiðarbæ, rafsuðumaður fæddist 20. mars 1918 í Tungu við Suðurlandsbraut í Reykjavík og lést 17. nóvember 1985 á Sjúkrahúsi Keflavíkur.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson ökumaður, múrari, skipasmiður, verkamaður, bóndi, f. 11. apríl 1876 í Ártúni við Reykjavík, d. 2. október 1958, og síðari kona hans Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 26. september 1880 á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, d. 11. maí 1954.

I. Barnsmóðir Guðmundar var Vilborg Kristjánsdóttir, þá í Ólafsvík, en sama ár vinnukona á Akri í Staðarsveit á Snæfellsnesi, en síðar á Mið-Hvammi í Dýrafirði, f. 11. júlí 1868, d. 22. febrúar 1941. Foreldrar hennar voru Kristján Steindórsson bóndi í Eyrarbúð í Laugarbrekkusókn á Snæf., f. 1815, d. 25. janúar 1892, og Vilborg Bjarnadóttir vinnukona, f. 1829, d. 28. mars 1883.
Barn þeirra:
1. Kristjana Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Þingeyri við Dýrafjörð, f. 25. júní 1901, d. 14. júlí 1978. Menn hennar voru Óskar Gunnar Jóhannsson og Bjarni Guðbjartur Jóhannsson.

II. Fyrri kona Guðmundar var Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880 í Hvammi í Sandasókn í Dýrafirði, d. 13. nóvember 1913. Foreldrar hennar voru Sigurður Greipsson, þá kvæntur vinnumaður í Lægsta-Hvammi í Sandasókn í Dýrafirði, f. 14. nóvember 1841, d. 21. júlí 1890, og kona hans Kristjana Jónsdóttir vinnukona þar, f. 20. desember 1849, d. 24. júní 1943.
Börn þeirra:
2. Sigurður Guðmundsson, f. 27. maí 1904 á Þingeyri í Sandasókn, Ís., drukknaði 17. mars 1928.
3. Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 3, f. 29. ágúst 1905 í Kasthúsum í Reykjavík, d. 10. febrúar 1960.
4. Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 20. september 1906 í Reykjavík, d. 2. apríl 1995.
5. Ingólfur Guðmundsson úrsmiður í Eyjum, f. 27. júlí 1909 í Reykjavík, d. 28. febrúar 1968.

III. Barnsmóðir Guðmundar var Ólína Sigríður Ólafsdóttir í Reykjavík, f. 11. maí 1876, d. 22. júlí 1928. Foreldrar hennar voru Ólafur Jón Sigurðsson prentsmiður, lausamaður, húsmaður í Borgarfirði, f. 4. desember 1844, d. 1. ágúst 1879 og kona hans Helga Magnúsdóttir húsfreyja, f. 5. janúar 1850, d. 9. október 1911.
Barn þeirra:
6. Margrét Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Siglufirði, f. 11. desember 1917, d. 2. september 1992. Maður hennar var Jósafat Sigurðsson.

IV. Síðari kona Guðmundar, (1920), var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880 á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, d. 11. maí 1954.
Börn þeirra:
7. Ásþór Guðmundsson rafsuðumaður, síðar á Vatnsleysuströnd, f. 20. mars 1918 í Reykjavík, d. 17. nóvember 1985.
8. Kristján Rósberg Guðmundsson pípulagningamaður, f. 17. september 1919, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 24. júlí 1975.
9. Matthías Gunnlaugur Guðmundsson húsasmiður, síðar í Keflavík, f. 19. nóvember 1920, d. 25. október 1997.

Ásþór var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Eyja 1921 og bjó með þeim á Eiðinu, að Ofanleiti, í Stórhöfðavita, á Brimhólum og í Heiðarbæ. Þau fluttust að Hnausum á Snæfellsnesi 1936 og að Skjaldartröð í Breiðavík þar og voru bændur.
Hann fluttist með þeim í Voga á Vatnsleysuströnd 1948.
Ásþór vann á Keflavíkurflugvelli og síðan í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og þar tók hann próf í rafsuðu og vann við það þar til ársins 1979, er hann lét af störfum vegna veikinda.
Hann dvaldi síðustu ár sín á Hlévangi í Keflavík.
Ásþór lést 1985.

Kona hans var Ólafía Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 28. febrúar 1936.
Börn þeirra:
1. Gunnar Ásþórsson, f. 18. október 1952. Hann er ókvæntur.
2. Jóhannes Brynjólfur Hólm Ásþórsson, f. 4. febrúar 1954. Kona hans Sigrún Baldursdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.