Ástvaldur Valtýsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. nóvember 2019 kl. 21:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. nóvember 2019 kl. 21:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ástvaldur Valtýsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ástvaldur Valtýsson frá Kirkjufelli, sjómaður, vélstjóri, fiskverkandi fæddist 5. febrúar 1941 á Hvoli og lést 27. maí 2003. Foreldrar hans voru Valtýr Brandsson verkamaður, sjómaður, verkstjóri, f. 3. júní 1901 á Önundarhorni u. Eyjafjöllum, d. 1. apríl 1976, og kona hans Ásta Sigrún Guðjónsdóttir frá Miðhúsum í Hvolhreppi, húsfreyja, f. 5. september 1905 í Varmadal á Rangárvöllum, d. 10. maí 1999.

Barn Ástu Sigrúnar:
1. Helga Valtýsdóttir húsfreyja, starfsmaður Pósts og síma, býr í Garðabæ, fósturdóttir Valtýs, f. 21. júlí 1928 í Krókatúni í Hvolhreppi. Maður hennar er Björn Björnsson.
Börn Ástu Sigrúnar og Valtýs:
2. Jóhanna Valtýsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 17. júní 1930 í Sjólyst. Maður hennar Þórarinn Brynjar Þórðarson.
3. Stúlka, f. 12. júlí 1931 á Hvoli, d. 7. september 1931.
4. Ása Valtýsdóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1933 á Hvoli, d. 24. apríl 1981. Maður hennar Georg Sigurðsson.
5. Vilborg Valtýsdóttir, f. 17. mars 1936 á Hvoli, d. 3. júlí 1938.
6. Sveinn Ármann Valtýsson matsveinn, býr í Hafnarfirði, f. 4. apríl 1937 á Hvoli. Kona Kristín Jóna Jónasdóttir.
7. Guðbrandur Valtýsson sjómaður, býr í Njarðvík, f. 5. ágúst 1939 á Hvoli. Kona hans Hrefna Jónsdóttir.
8. Ástvaldur Valtýsson sjómaður, vélstjóri, fiskverkandi, f. 5. febrúar 1941 á Hvoli, d. 27. maí 2003. Kona hans Halldóra Sigurðardóttir.
9. Auðberg Óli Valtýsson bæjarstarfsmaður, f. 15. desember 1944 á Kirkjufelli, d. 5. júní 1994. Kona hans Margrét Óskarsdóttir.
10. Kristín Valtýsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1946 á Kirkjufelli. Maður hennar Gunnar Árnason.
11. Jón Valtýsson sjómaður í Eyjum, f. 17. apríl 1948 á Kirkjufelli. Kona hans Þórhildur Guðmundsdóttir.
12. Sigríður Valtýsdóttir, f. 18. maí 1949 á Kirkjufelli, d. 19. október 1953.
13. Óskar Valtýsson verkamaður, býr í Eyjum, f. 7. mars 1951 á Kirkjufelli. Kona hans Jóhanna M. Þórðardóttir.
Barn Helgu Valtýsdóttur og fósturbarn Ástu og Valtýs:
14. Ásta María Jónasdóttir húsfreyja, f. 22. október 1947 á Kirkjufelli. Maður hennar Hallgrímur Júlíusson.

Ástvaldur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann gerðist sjómaður, var vélstjóri á bátum annarra og eigin báti, Árntý VE 115.
Árið 1986 stofnaði hann fiskverkunina Kinn ásamt fjölskyldu sinni og rak hana.
Þau Halldóra giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu við Hátún og síðan Lyngholt í Keflavík.
Þau fluttu til Eyja 1972, bjuggu um stund á Kirkjufelli, síðan skamma stund í Vöruhúsinu við Skólaveg 1. Þau keyptu húið við Hrauntún 37 og bjuggu þar meðan báðum entist líf.
Ástvaldur lést 2003.

Kona Ástvaldar, (6. júní 1964), er Halldóra Sigurðardóttir húsfreyja, f. 21. júlí 1945.
Börn þeirra:
1. Stefanía Ástvaldsdóttir húsfreyja, vinnur á leikskóla, f. 28. febrúar 1964. Barnsfaðir hennar Gylfi Þór Gunnlaugsson. Maður hennar Guðbjörn Ármannsson.
2. Ásta María Ástvaldsdóttir húsfreyja, rekur og starfar við Grím kokk með Grími manni sínum, f. 28. október 1966. Maður hennar Grímur Þór Gíslason.
3. Una Sigrún Ástvaldsdóttir húsfreyja, vinnur í Konukoti í Reykjavík, f. 6. mars 1972. Fyrrum maður hennar Magnús Freyr Valsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.