Ásta Sigurðardóttir (Ásavegi 7)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. desember 2022 kl. 13:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. desember 2022 kl. 13:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ásta Sigurðardóttir (Ásavegi 7)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Sigurðardóttir frá Ásavegi 7, húsfreyja fæddist þar 11. september 1938.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sveinsson bifreiðastjóri, útgerðarmaður, kaupmaður, f. 18. nóvember 1898 á Sveinsstöðum, d. 28. júní 1964, og kona hans Sigríður Guðmunda Pétursdóttir frá Blómsturvöllum á Eyrarbakka, húsfreyja, verslunarmaður, f. 22. nóvember 1907, d. 10. maí 2000.

Börn Sigríðar og Sigurðar:
1. Sveinn Sigurðsson bifreiðastjóri, f. 31. maí 1928 á Sveinsstöðum. Kona hans Haflína Ásta Ólafsdóttir.
2. Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 11. september 1938 á Ásavegi 7. Maður hennar Hreinn Gunnarsson, látinn.

Ásta var með foreldrum sínum í æsku.
Hún sat einn vetur í Gagnfræðaskólanum.
Ásta vann við innheimtu og var starfsmaður á Sjúkrahúsinu. Einnig vann hún við verslun föður síns.
Þau Hreinn giftu sig 1958, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Ásaveg 7.
Hreinn lést 2009.

I. Maður Ástu, (18. janúar 1958), var Hreinn Gunnarsson frá Vopnafirði, sjómaður, f. 18. október 1934, d. 20. febrúar 2009.
Börn þeirra:
1. Sigríður Hreinsdóttir húsfreyja í Eyjum, starfsmaður við Barnaskólann og leikskólann á Sóla, f. 28. september 1958. Fyrrum maður hennar Guðmann Magnússon úr Reykjavík.
2. Gunnar Hreinsson, málari í Noregi, f. 22. júlí 1962. Kona hans Sigurbjörg Magnúsdóttir.
3. Sigurður Ómar Hreinsson, netagerðarmeistari, býr í Danmörku, f. 30. apríl 1964. Kona hans Hrefna Sigurðardóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.