Ásta Sigurðardóttir (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. mars 2022 kl. 10:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. mars 2022 kl. 10:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ásta Sigurðardóttir''' húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 1740, d. 11. mars 1770.<br> Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson prestur í Holti í Önundarfirði, f. 2. október 1684, d. 22. desember 1760, og miðkona hans Elín Markúsdóttir húsfreyja, f. um 1715.<br> Þau Sigurður giftu sig og Ásta bjó með honum í Eyjum 1758-1760, líklega í Ísafjarðarsýslu 1760-1761, var líklega bóndakona á Mosvöllum í Önundarfirði 1762-1766 og...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Sigurðardóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 1740, d. 11. mars 1770.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson prestur í Holti í Önundarfirði, f. 2. október 1684, d. 22. desember 1760, og miðkona hans Elín Markúsdóttir húsfreyja, f. um 1715.

Þau Sigurður giftu sig og Ásta bjó með honum í Eyjum 1758-1760, líklega í Ísafjarðarsýslu 1760-1761, var líklega bóndakona á Mosvöllum í Önundarfirði 1762-1766 og á Eyri þar 1766-1768, aftur í Eyjum 1768, en lést 1770 og Sigurður lést í Kaupmannahöfn 1797.

I. Maður Ástu var Sigurður Sigurðsson sýslumaður, f. 1726, d. 18. ágúst 1797.
Börn þeirra:
1. Valgerður Sigurðardóttir, f. 1766, d. 18. maí 1786 í Eyjum úr bólusótt.
2. Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja á Hamraendum í Miðdölum, f. um 1766 að Mosvöllum í Önundarfirði, d. 1842. Maður hennar Ólafur Benediktsson bóndi, stúdent á Hamraendum, f. um 1780, d. 1. júlí 1820.
3. Tómas Sigurðsson prestur í Flatey, í Garpsdal í A.-Barð. og í Holti í Önundarfirði, f. 14. maí 1769 á Oddsstöðum, d. 13. október 1849 í Holti. Kona hans Guðrún Sigurðardóttir frá Ökrum, húsfreyja, f. 1766 í Hítarnesi á Mýrum, d. 28. ágúst 1851 í Holti.
4. Elín Sigurðardóttir, f. um 1770, d. 1797, ógift, barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.