Ásta Sigurðardóttir (Hafnarnesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. maí 2022 kl. 21:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2022 kl. 21:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ásta Sigurðardóttir.

Ásta Sigurðardóttir frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, fiskiðnaðarkona fæddist þar 1. ágúst 1933 og lést 9. mars 2022 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Sigurður Karlsson frá Karlsá í Fáskrúðsfirði, f. 29. mars 1904, d. 12. ágúst 1972, og Kristín Sigurðardóttir frá Hafnarnesi-Níelsarbæ, f. 6. október 1906, d. 27. maí 1981.

Ásta eignaðist barn með Ragnari 1951.
Þau Garðar giftu sig 1955, eignuðust sjö börn og Garðar fóstraði son hennar frá fyrra sambandi.
Þau bjuggu í Nýjalandi við Heimagötu 26, á Faxastíg 27, við Illugagötu 10 og síðast á Túngötu 3.
Garðar lést 2012 og Ásta 2022.

I. Barnsfaðir Ástu er Ragnar Runólfsson frá Bræðratungu, f. 13. desember 1933.
Barn þeirra:
1. Sigurður Kristinn Ragnarsson, f. 29. desember 1951 á Landspítalanum, skírður á Fáskrúðsfirði. Kona hans Halldóra Ingibjörg Ingólfsdóttir, látin. Kona hans Margrét Elín Ragnheiðardóttir.

II. Maður Ástu, (29. maí 1955), var Garðar Ásbjörnsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarstjóri, f. 27. mars 1932, d. 7. maí 2012.
Börn þeirra:
2. Daði Garðarsson, f. 14. desember 1954. Kona hans Magnea Ósk Magnúsdóttir.
3. Ásbjörn Garðarsson, f. 31. mars 1956.
4. Gylfi Garðarsson, f. 5. ágúst 1957. Fyrrum kona hans Elísa Harpa Grytvik.
5. Sigmar Einar Garðarsson, f. 19. september 1959. Kona hans Ragna Garðarsdóttir.
6. Lilja Garðarsdóttir, f. 11. febrúar 1961. Maður hennar Magnús Gísli Magnússon.
7. Gerður Garðarsdóttir, f. 21. maí 1963. Maður hennar Eyjólfur Heiðar Heiðmundsson.
8. Ásta Garðarsdóttir, f. 12. maí 1965, d. 27. mars 1999. Maður hennar Karl Björnsson.
Sonur Ástu og fóstursonur Garðars:
1. Sigurður Kristinn Ragnarsson Runólfssonar, f. 29. desember 1951. Kona hans Halldóra Ingibjörg Ingólfsdóttir, látin. Kona hans Margrét Elín Ragnheiðardóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.