Ásbjörn Þórðarson (Sólheimatungu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. febrúar 2023 kl. 13:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. febrúar 2023 kl. 13:48 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ásbjörn Þórðarson.

Ásbjörn Þórðarson formaður, síðar netamaður fæddist 14. desember 1899 á Sléttabóli á Brunasandi í V-Skaft. og lést 10. nóvember 1974 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Þórður Magnússon bóndi á Sléttabóli og í Neðri-Dal í Mýrdal, f. 8. október 1854 á Syðri-Velli í Flóa, d. 8. maí 1945 í Neðri-Dal, og kona hans Eygerður Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1866 á Orrustustöðum á Brunasandi, d. 1. janúar 1954 í Neðri-Dal.

Bræður Ásbjörns í Eyjum voru:
1. Þórður Þórðarson formaður á Sléttabóli, f. 12. janúar 1893, drukknaði 1. mars 1942.
2. Sigurður Þórðarson verkamaður á Boðaslóð, f. 24. janúar 1894, d. 10. ágúst 1978.
3. Magnús Ingibergur Þórðarson verkamaður, f. 5. mars 1895, d. 2. janúar 1983.
4. Hávarður Þórðarson, f. 26. janúar 1902, d. 16. janúar 1934.

Ásbjörn var með foreldrum sínum á Sléttabóli til 1912, síðan í Neðr-Dal til 1929. Þá fluttist hann til Eyja.
Þau Jóhanna giftu sig 1929, bjuggu í Mörk, (Hásteinsvegi) 13 1930, eignuðust Ester á því ári, Svölu 1931 og Hávarð 1934.
Þau bjuggu í Bergholti, (Vestmannabraut) 67 1934, síðar í Sólheimatungu, (Brekastíg) 14.
Þau fluttust til Reykjavíkur, bjuggu þar á Brekkustíg 12 við andlát.
Jóhanna lést 1991 og Ásbjörn 1974.

Kona Ásbjörns, (1929), var Jóhanna Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 20. október 1907, d. 10. júlí 1991.
Börn þeirra voru:
1. Ester Ásbjörnsdóttir, f. 14. júní 1930. Hún var rannsóknamaður í Kópavogi. Maður hennar: Tómas Sigurðsson bifreiðastjóri.
2. Svala Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. júní 1931, síðast í Reykjavík, d. 18. nóvember 2012. Fyrri maður hennar var Ólafur Friðbjörnsson Hólm kennari í Reykjavík. Þau skildu. Síðari maður Svölu var Bragi Pétursson.
3. Hávarður Ásbjörnsson skipstjóri, vélstjóri, f. 2. febrúar 1934, d. 12. febrúar 1962. Kona hans var Edda Einars Andrésdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.