Ásbjörn Pálsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2016 kl. 17:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2016 kl. 17:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ásbjörn Pálsson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Rannveig Ólafsdóttir og Ásbjörn Pálsson.

Ásbjörn Pálsson sjómaður, kyndari fæddist 2. september 1880 í Garðasókn á Akranesi og lést 14. október 1952.
Foreldrar hans voru Páll Guðmundsson frá Torfastöðum í Grafningi, verkamaður í Reykjavík, f. 1852, og barnsmóðir hans Sigríður Ásbjörnsdóttir húsfreyja, f. 24. nóvember 1861, d. 14. nóvember 1934.

Ásbjörn var með vinnukonunni móður sinni í Nikulásarhúsi í Reykjavík 1890, var vinnumaður í Gaulverjabæ í Flóa 1901.
Þau Rannveig fluttust með sr. Ingvari Nikulássyni að Skeggjastöðum við Bakkafjörð 1907.
Ásbjörn og Rannveig giftust í nóvember 1907, eignuðust Kára Cogill 1908 og bjuggu á Höfn í Bakkafirði 1909.
Þau fluttust frá Höfn til Eyja 1909 með Kára, bjuggu í Stakkahlíð 1910, í Götu 1911 og 1912, á Gjábakka 1913 og 1914, á Jaðri 1915, á Bifröst 1916.
Þau fluttust á Bakkafjörð 1917 með 3 af börnum sínum og til Reykjavíkur 1919. Þar bjuggu þau síðan.
Ásbjörn var sjómaður í Eyjum, síðar kyndari á skipum Skipaútgerðar Ríkisins, Súðinni og Esju. Að síðustu var hann verkamaður í Reykjavík.
Rannveig lést 1941 og Ásbjörn 1952.

Kona Ásbjörns, (30. nóvember 1907), var Rannveig Ólafsdóttir húsfreyja, f. 27. apríl 1884 í Háuhjáleigu á Akranesi, d. 19. júlí 1941.
Börn þeirra voru:
1. Kári Coghill Ásbjörnsson þjónn, f. 2. ágúst 1908, d. 11. september 1932, ókv.
2. Úlla Jóhanna Dolly Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. júní 1910 í Stakkahlíð, d. 25. febrúar 1968. Maður hennar var Tyrfingur Þórðarson vélstjóri.
3. Hlöðver Ólafur Ásbjörnsson, f. 31. maí 1912 í Götu, d. 10. maí 1913.
4. Sigríður Pálma Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. september 1913, d. 4. júlí 1986. Maður hennar var Jóhannes Guðmundsson vélstjóri.
5. Hulda Fanný Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Belgíu, f. 22. janúar 1915 á Jaðri, d. 1969. Maður hennar var Lucane Eduware siglingafræðingur.
6. Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson, f. 19. janúar 1917 í Bifröst, fórst á stríðsárunum, ókv.
7. Hlöðver Óliver Ásbjörnsson stýrimaður á Dettifossi, f. 21. maí 1918 á Bjargi í Bakkafirði, d. 21. febrúar 1945, ókv.
8. Ólafur Hafsteinn Ásbjörnsson húsgagnabólstrari í Kaupmannahöfn, f. 22. júlí 1920 í Reykjavík. Kona hans var Guðný Hreiðarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.