Árný Friðriksdóttir (Gröf)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2019 kl. 15:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2019 kl. 15:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Árný Friðriksdóttir (Gröf)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Árný Friðriksdóttir frá Gröf, húsfreyja í Eyjum og Reykjavík, síðast á Húsavík fæddist 20. mars 1898 og lést 8. júlí 1977.
Foreldrar hennar voru Friðrik Gissur Benónýsson bóndi, útgerðarmaður, bátsformaður og dýralæknir, f. 14. ágúst 1858, d. 23. ágúst 1943, og kona hans Oddný Benediktsdóttir húsfreyja, f. 15. desember 1864, d. 10. apríl 1940.

Börn Benedikts og Oddnýjar voru:
1. Sigríður Friðriksdóttir húsfreyja, f. 29. júní 1885, síðast í Kópavogi, d. 5. febrúar 1976.
2. Benedikt Friðriksson skósmíðameistari, f. 26. febrúar 1887 á Efstu-Grund u. Eyjafjöllum, d. 11. febrúar 1941.
3. Elías Friðriksson verkamaður í Gröf, f. 25. mars 1888 u. Eyjafjöllum, d. 3. desember 1908.
4. Magnúsína Friðriksdóttir húsfreyja í Eyjum, síðast í Reykjavík, f. 14. maí 1889, d. 19. apríl 1983.
5. Friðrik Friðriksson, tvíburi, f. 14. september 1890, d. 11. desember 1890.
6. Gissur Friðriksson, tvíburi, f. 14. september 1890, d. 22. nóvember 1890.
7. Valgerður Friðriksdóttir húsfreyja, f. 9. febrúar 1892, d. 24. júlí 1957.
8. Ingibjörg Friðriksdóttir, f. 11. febrúar 1894, d. 13. júní 1895.
9. Friðrik Friðriksson, f. 13. maí 1895, d. 25. maí 1895.
10. Anna Friðriksdóttir, f. 24. ágúst 1896, d. 27. apríl 1897.
11. Árný Friðriksdóttir húsfreyja, f. 20. mars 1898, d. 8. júlí 1977.
12. Friðrik Friðriksson, f. 25. október 1899, d. 20. maí 1913.
13. Oddný Friðriksdóttir, f. 23. febrúar 1901, d. 25. febrúar 1901.
14. Þorbjörn Friðriksson sjómaður, skipstjóri, f. 16. ágúst 1902 í Péturshúsi, d. 4. júní 1977.
15. Benóný Friðriksson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 7. janúar 1904 á Kirkjubæ, d. 12. maí 1972.
16. Elísabet Sigríður Friðriksdóttir bústýra, f. 2. október 1905 í Gröf, d. 21. apríl 1985.
17. Sólmundur Friðriksson, f. 30. maí 1908, d. 6. júlí 1908.
18. Elín Fanný Friðriksdóttir húsfreyja, forstöðukona, f. 10. febrúar 1910, d. 28. nóvember 1997.
19. Marie Albertine Friðriksdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1911, síðast í Hraunbúðum, d. 23. desember 1989.

Árný var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim frá Núpi u. Eyjafjöllum til Eyja 1902, var með þeim í Péturshúsi (áður Vanangur) við Urðaveg, á Kirkjubæ, en síðan í Gröf 1905.
Árný var í Gröf 1918, vinnukona hjá Sigurði lyfsala og Önnu Guðrúnu Pálsdóttur í Arnarholti 1920 og 1922.
Þau Árni eignuðust Rafn á Þingvöllum 1923, Benóný þar 1924 og Friðrik í Rafnsholti 1926. Þau skildu.
Rafn fór í fóstur til foreldra Árnýjar, var hjá þeim 1930. Friðrik lést 1929. Benóný var tökubarn á Haðarstíg 15 í Reykjavík 1930, lést 1946.
Þau Jón Finnbogi bjuggu saman um skeið, eignuðust Kolbrúnu í Viðey, misstu Friðrik í Haga 1929, bjuggu í Lyngholti 1930, eignuðust þrjú börn, en slitu samvistir.
Árný fluttist úr bænum, bjó um skeið í Reykjavík, eignaðist barn með Halldóri Jóni 1937.
Hún bjó síðast á Brimbakka á Húsavík.
Árný lést 1977.

I. Maður Árnýjar var Árni Magnús Sigfússon bakari, varðmaður, f. 17. júní 1894, d. 17. apríl 1978.
Börn þeirra:
1. Rafn Árnason stýrimaður, f. 31. janúar 1923 á Þingvöllum, dó Vestanhafs 7. mars 1958. Kona hans er Sóley Svanfríður Sveinsdóttir.
2. Benóný Árnason, f. 2. nóvember 1924 á Þingvöllum, tökubarn á Haðarstíg 15 í Reykjavík 1930, d. 18. ágúst 1946.
3. Friðrik Árnason, f. 12. október 1926 í Rafnsholti, d. 7. mars 1929 í Haga.

II. Sambýlismaður Árnýjar var Jón Finnbogi Bjarnason trésmiður, lögregluþjónn á Ísafirði, veitingamaður í Eyjum, f. 28. febrúar 1886 í Ármúla í Nauteyrarhreppi, N-Ís., d. 9. júní 1952.
Börn þeirra:
4. Þorbjörg Fanný Jónsdóttir, f. 10. október 1928, d. 5. september 1931.
5. Guðrún Kolbrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. september 1929 í Viðey. Maður hennar var Sigurður Árnason.
6. Hilmar Jónsson, f. 6. ágúst 1930 í Valhöll.

III. Barnsfaðir Árnýjar var Halldór Jón Þorleifsson verkamaður, síðast á Siglufirði, f. 12. mars 1908, d. 24. ágúst 1980.
Barn þeirra:
7. Gestur Heiðar Halldórsson, f. 1. júlí 1937, d. 4. mars 2018. Kona hans er Sesselja Fornadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.