Árnný Sigurbjörg Guðjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. maí 2015 kl. 21:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2015 kl. 21:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árnný Sigurbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja og skrifstofumaður í Reykjavík, fæddist 19. september 1940 á Högnastöðum í Þverárhlíð í Mýrasýslu. Foreldrar hennar voru Guðjón Jónsson, f. 1913 og k.h. Helga Þuríður Árnadóttir, f. 1918.

Árnný lauk landsprófi frá Gagnfræðaskólanum 1956. Hún starfaði m.a hjá Sparisjóðnum Símstöðinni og Mjólkursamsölunni, en flutti til Reykjavíkur 1973 og hefur búið þar síðan. Starfaði hjá Véladeild SÍS frá 1974 einnig hjá Bifreiðaskoðun og Umferðarstofu.

Fyrri maður hennar (5. júní 1960) var Sigurður Pétur Oddsson frá Dal, skipstjóri, f. 18. maí 1936, d. 14. ágúst 1968.
Börn þeirra voru:

  1. Guðjón, f. 1960,
  2. Magnús Ingi, f. 1961, d. 23. júlí 1987.
  3. Oddur, f. 1962.

Síðari maður hennar er Edmund Bellersen raftæknir, f. 2. febr. 1942, þýzkrar ættar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.