Árni Helgason (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. janúar 2016 kl. 16:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. janúar 2016 kl. 16:22 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Helgason frá Kornhól fæddist 4. september 1848 í Kornhól og lést 5. september 1916 í Utah.
Foreldrar hans voru Helgi Jónsson bóndi og formaður í Kornhól, f. 9. júlí 1806, d. 17. júní 1864, og síðari kona hans Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja, f. 25. janúar 1814, d. 25. september 1857.

Árni var bróðir Jónasar Helgasonar bónda í Nýjabæ og Bjarna Helgasonar vinnumanns.
Hann var hálfbróðir, (samfeðra), Helgu Helgadóttur húsfreyju í Steinmóðshúsi, f. 12. apríl 1836, d. 29. desember 1914.

Árni var með foreldrum sínum í Kornhól 1850, 1855, með ekklinum föður sínum þar 1860, ókvæntur vinnumaður í Stakkagerði 1870.
Árni var flokksforingi í Herfylkingunni.
Hann fór til Vesturheims 1886 frá Norðurgarði.
Þar var hann járnbrautarstarfsmaður.
Hann lést 1916.

Kona Helga var Sesselja Kristín Vigfúsdóttir, f. 23. nóvember 1866.
Barn hér:
Ellen, hafði próf frá ,,College University“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.