Ármann Friðriksson (Látrum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2013 kl. 21:38 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2013 kl. 21:38 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ármann Friðriksson færð á Ármann Friðriksson (Látrum))
Fara í flakk Fara í leit
Ármann

Ármann Friðriksson fæddist 21. nóvember 1914 í Vestmannaeyjum og lést 11. nóvember 1989. Foreldrar hans voru Sigurína Katrín Brynjólfsdóttir og Friðrik Jónsson formaður. Voru þau kennd við heimili þeirra Látur við Vestmannabraut 44.

Kona Ármanns var Ragnhildur Eyjólfsdóttir og eignuðust þau þrjú börn, Helgu, Eyjólf Agnar og Ármann.

Ármann var mikill útgerðarmaður og aflamaður góður. Var með Olgu 1938, Ísleif 1939-1940. Kaupir m/b Gunnar Hámundarson, með Kristni bróður sínum, og skíra Friðrik 1941-1943, eignast þá Friðrik Jónsson, nýjan, sumarið 1943-1944. Flytja þá um vorið til Reykjavíkur.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Ármann:

Frábær að keppni, festu og ró
fár en drengilegur,
Ármann á Friðrik föng úr sjó
flestum meiri drengur.

Myndir af Ármanni


Heimildir

  • Hallgrímur Þorsteinsson. Minning um Ármann Friðriksson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1989.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum