Ágústa Magnúsdóttir (Dal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. desember 2019 kl. 10:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. desember 2019 kl. 10:01 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Ágústa Magnúsdóttir húsfreyja frá Dal, fæddist 9. ágúst 1912 í Eyjum og lést 24. júní 1960.
Foreldrar hennar voru Magnús Þórðarson formaður í Dal, f. 19. september 1879, fórst með Fram VE-176 14. janúar 1915, og kona hans Ingibjörg Bergsteinsdóttir, f. 24. janúar 1879, d. 2. september 1968.

Börn Ingibjargar og Magnúsar:
1. Bergþóra Magnúsdóttir verslunarmaður (,,verslunarmær“), f. 4. apríl 1905, d. 19. október 1925 á Vífilsstöðum.
2. Kristján Magnússon málarameistari, f. 24. febrúar 1909, d. 16. nóvember 1979, kvæntur Júlíönu Kristmannsdóttur Þorkelssonar húsfreyju.
3. Steinunn Ágústa Magnúsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1912, d. 24. júní 1960, gift Böðvari Jónssyni Sverrissonar í Háagarði.
4. Magnea Lovísa Magnúsdóttir húsfreyja, f. 12. ágúst 1914, d. 22. júní 1991, gift Oddi Sigurðssyni skipstjóra.

Börn Ingibjargar og Jóns Guðnasonar:
5. Ragnheiður Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 30. október 1917, d. 22. mars 2004, kona Vigfúsar Ólafssonar skólastjóra.
6. Bergþóra Guðleif Jónsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1921, d. 25. júní 2005. Maður hennar var Björn Svanbergsson framkvæmdastjóri í Reykjavík.

Steinunn Ágústa var með móður sinni í Dal 1920, en fór í fóstur til föðursystur sinnar Kristínar Þórðardóttur húsfreyju á Borg og manns hennar Sigurjóns Högnasonar.
Þau Böðvar settust að í Reykjavík.

I. Maður Steinunnar Ágústu, (22. febrúar 1936), var Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri og kaupsýslumaður frá Háagarði, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
Börn þeirra:
1. Jón Einar Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur, forstöðumaður, f. 27. júlí 1936 í Stakkagerði.
2. Hrafnhildur Böðvarsdóttir húsfreyja, bókmenntafræðingur í Kanada, f. 28. október 1944. Maður hennar Eugene Krenciglowa.
3. Magnús Böðvarsson læknir, f. 4. október 1949. Fyrrum kona Lovísa Fjeldsted. Sambúðarkona hans Ásta Sigurbrandsdóttir.
4. Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, fasteignasali, f. 22. nóvember 1951. Kona hans Anna Ó. Guðnadóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
  • Morgunblaðið 1997. Minning Böðvars.
  • Verkfræðingatal. Þorsteinn Jónsson og fleiri. Þjóðsaga ehf 1996.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.
  • Garður.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.