Ágústa Einarsdóttir (Sætúni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. mars 2023 kl. 13:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. mars 2023 kl. 13:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ágústa Einarsdóttir (Sætúni)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurhanna Ágústa Einarsdóttir frá Sætúni við Bakkastíg 10 fæddist 10. febrúar 1937.
Foreldrar hennar voru Einar Sveinn Jóhannesson skipstjóri, f. 13. apríl 1914 á Seyðisfirði, d. 26. september 1994, og kona hans Sigríður Ágústsdóttir húsfreyja, f. 5. júní 1912 í Mið-Skála u. Eyjafjöllum, d. 14. október 1996.

Börn Sigríðar og Einars Sveins:
1. Sigurhanna Ágústa Einarsdóttir húsfreyja í Kópavogi, forstöðukona heimilisþjónustu Kópavogs, f. 10. febrúar 1937 í Sætúni. Maður hennar Ólafur Valdimar Oddsson verktaki, látinn.
2. Dóróthea Einarsdóttir húsfreyja í Mosfellssveit, matráðskona, f. 10. febrúar 1940 í Sætúni, d. 2. desember 2021. Maður hennar Magnús Sigurðsson, látinn.
3. Elín Bryndís Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, sjúkraliði, f. 1. apríl 1942 á Hásteinsvegi 7.
4. Þorbjörg Guðný Einarsdóttir húsfreyja í Eyjum, fiskverkakona, f. 12. apríl 1950 í Steinum.
5. Sveinn Einarsson vélstjóri í Eyjum, f. 14. maí 1958 á Sjúkrahúsinu. Fyrrum kona hans Þorleif Lúthersdóttir.

Ágústa var með foreldrum sínum í æsku, í Sætúni, á Hásteinsvegi 7, í Steinum við Urðaveg, í Holti um skeið og á Faxastíg 45.
Hún varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1953.
Hún vann á skrifstofu Fiskiðjunnar í Eyjum, vann við heimilishjálp í Kópavogi, varð forstöðukona þar og gegndi starfinu í 32 ár.
Þau Ólafur Valdimar giftu sig 1957, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Ásavegi 2B, síðar við Faxastíg 45, fluttu til Reykjavíkur 1958, í Kópavog 1960, bjuggu við Álfhólsveg, en síðast í Kórsölum 5.
Ólafur lést 2023. Ágústa býr í Kórsölum í Kópavogi.

I. Maður Ágústu, (25. desember 1957), var Ólafur Valdimar Oddsson frá Sælingsdal í Dalas., f. þar 8. september 1935, d. 12. janúar 2023.
Börn þeirra:
1. Einar Sveinn Ólafsson framkvæmdastjóri, f. 10. október 1957 á Ásavegi 2B. Kona hans Hafdís Gísladóttir.
2. Sigríður Ólafsdóttir kennari, f. 7. mars 1959. Maður hennar Karl Júlíus Sigurgíslason.
3. Bergsveinn Ólafsson fasteignasali, f. 5. ágúst 1960. Kona hans Inger María Schweiz Ágústsdóttir.
4. Óskar Ólafsson verktaki, f. 8. september 1963. Kona hans Astrid Sigurðardóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ágústa.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 27. janúar 2023. Minning Ólafs Valdimars.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.