Ágúst Úlfarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. nóvember 2020 kl. 13:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. nóvember 2020 kl. 13:27 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ágúst Úlfarsson.

Ágúst Úlfarsson útgerðarmaður, trésmiður fæddist 9. júní 1896 í Fljótsdal í Fljótshlíð og lést 5. október 1979.
Foreldrar hans voru Guðlaug Brynjólfsdóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1871 í Vesturkoti á Skeiðum, d. 17. febrúar 1910, og Úlfar Jónsson bóndi, f. 24. september 1864 í Fljótsdal, d. 20. apríl 1932.

Börn Úlfars og Guðlaugar voru:
1. Óskar Úlfarsson, f. 27. des. 1889 í Fljótsdal, d. 5. janúar 1946.
2. Guðjón Úlfarsson trésmiður, bóndi í Vatnsdal í Fljótshlíð, f. 24. maí 1891 í Fljótsdal, d. 13. maí 1960. Hann var kvæntur Þuríði Guðrúnu Vigfúsdóttur.
3. Jón Úlfarsson bóndi í Fljótsdal, f. 22. júlí 1892 í Fljótsdal, d. 25. nóv. 1954.
4. Ingibjörg Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 13. okt. 1893 í Fljótsdal, d. 14. jan. 1969. Maður hennar var Guðjón Kr. Þorgeirsson, verkamaður.
5. Brynjólfur Úlfarsson bóndi á Efri-Þverá í Fljótshlíð og í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum, f. 12. febrúar 1895, d. 6. mars 197 9.
6. Ágúst Úlfarsson trésmiður, útgerðarmaður, f. 9. júní 1896 í Fljótsdal, d. 5. október 1979, kvæntur Sigrúnu Jónsdóttur frá Vilborgarstöðum, húsfreyju á Melstað, Faxastíg 8B.
7. Guðrún Úlfarsdóttir, ráðskona í Drangshlíð undir Eyjafjöllum, f. 29. okt. 1897 í Fljótsdal, d. 28. apríl 1985.
8. Ingunn Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 6. jan. 1899 í Fljótsdal, d. 18. nóv. 1958. Hún var gift Sigurði Sigurðssyni, sjómanni og skipasmið í Vestmannaeyjum.
9. Guðbjörg Úlfarsdóttir Norðdahl húsfreyja, f. 7. sept. 1901 í Fljótsdal, d. 3. febrúar 1975.
10. Þórunn Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 31. jan. 1903 í Fljótsdal, d. 21. desember 1988.
11. Elín Úlfarsdóttir, f. 15. febrúar 1904, d. 1. ágúst 1904.
12. Sæmundur Úlfarsson bóndi á Heylæk, f. 7. ágúst 1905 í Fljótsdal, d. 16. febrúar 1982.
13. Sigurþór Úlfarsson, f. 3. febrúar 1907, d. 10. desember 1981.
14. Magnús Úlfarsson, f. 27. ágúst 1908, d. 4. september 1908.
15. Andvana barn, f. 7. febrúar 1910.
Börn Úlfars og síðari konu hans Kristrúnar Kristjánsdóttur:
16. Guðlaug Elín Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 24. janúar 1918, d. 20. apríl 2002.
17. Sigurður Úlfarsson kennari, húsgagnasmíðameistari, f. 19. mars 1919, d. 7. júlí 2011.
18. Kristján Úlfarsson iðnverkamaður, f. 17. október 1921, d. 3. nóvember 1989.
19. Barn, sem dó í bernsku.

ctr


Börnin frá Fljótsdal, frá fyrra hjónabandi Úlfars. Í neðri hornum myndarinnar eru foreldrar þeirra, Úlfar Jónsson t.v. og Guðlaug Brynjólfsdóttir t.h.
Fremri röð frá vinstri: Guðrún Úlfarsdóttir, Ingunn Úlfarsdóttir, Ingibjörg Úlfarsdóttir, Guðbjörg Úlfarsdóttir, Þórunn Úlfarsdóttir.
Aftari röð frá vinstri: Brynjólfur Úlfarsson, Jón Úlfarsson, Sæmundur Úlfarsson, Óskar Úlfarsson, Ágúst Úlfarsson, Guðjón Úlfarsson, Sigurþór Úlfarsson.

Ágúst ólst upp með foreldrum sínum, en móðir hans lést eftir fæðingu andvana barns síns 1910.
Hann fluttist til Eyja á vertíð og bjó á Melstað í húsi Sigrúnar, sem þá var ekkja eftir Sigurð Hermannsson.
Þau Sigrún giftu sig 1926 og eignuðust tvö börn, en misstu annað þeirra þriggja mánaða gamalt.
Ágúst sótti sjóinn, var útgerðarmaður, en síðar trésmiður. Einnig vann hann að jarðrækt og búskap.
Eftir Gos dvaldi Sigrún á Sjúkrahúsinu, en Ágúst á Hraunbúðum.
Sigrún lést 1978 og Ágúst 1979.

I. Kona Ágústs, (3. júlí 1926), var Sigrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. febrúar 1886, d. 16. febrúar 1978.
Börn þeirra:
1. Sigurður Ágústsson flugvirkjameistari, f. 7. desember 1922 á Melstað, d. 2. maí 1975.
2. Ásta Sigurlaug Ágústsdóttir, f. 20. febrúar 1927 á Melstað, d. 24. maí 1927.
Börn Sigrúnar og stjúpbörn Ágústs voru:
3. Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1911, d. 17. janúar 1996, gift Jóni Ólafssyni bankamanni, f. 20. mars 1909, d. 9. mars 1960.
4. Þorsteinn Sigurðsson frystihússrekandi, f. 14. nóvember 1913, d. 19. júní 1997, kvæntur Önnu Ólafíu Jónsdóttur húsfreyju frá Hólmi, f. 11. október 1917, d. 9. júlí 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.