Ágúst Guðmundsson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. janúar 2023 kl. 19:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. janúar 2023 kl. 19:07 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ágúst Guðmundsson.

Ágúst Guðmundsson frá Djúpavík á Ströndum, vélstjóri, útgerðarmaður fæddist þar 16. júní 1942 og lést 23. maí 2020.
Foreldrar hans voru Guðmundur Pétur Ágústsson verkamaður, bifreiðastjóri, fiskimatsmaður, f. 11. desember 1912, d. 30. október 1997, og kona hans Ester Lára Magnúsdóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1917, d. 20. júní 2002.

Ágúst var með foreldrum sínum á Djúpavík í æsku.
Hann lærði vélstjórn.
Hann fluttist til Eyja 1962, var vélstjóri á ýmsum bátum, m.a. á Ófeigi III.
Árið 1971 hófu þau Ása og Ágúst útgerð með Einari Ólafssyni og Viktoríu Ágústu Ágústsdóttur í félaginu Bessa sf., gerðu út vb. Kap II VE 4. Árið 1976 keyptu þeir síðan stærra skip með sama nafni og gerðu það út þar til þau seldu skipið árið 1987 og hættu útgerð, en ráku fyrirtækið Bessa til 2014. Það kom að hönnun og uppsetningu á öryggisloka fyrir spilbúnað og unnu þeir einnig með Sigmund Jóhannssyni að fyrsta sleppibúnaði fyrir björgunarbáta.
Þau Ása Hólmfríður giftu sig 1963, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Vallargötu 4, Brimhólabraut 31, og Sóleyjargötu 8.
Ágúst lést í maí 2020 og Ása Hólmfríður í ágúst 2020.

I. Kona Ágústs, (1. júní 1963), var Ása Hólmfríður Sigurjónsdóttir frá Skógum við Bessastíg 8, f. 2. nóvember 1944, d. 28. ágúst 2020.
Börn þeirra:
1. Ester Fríða Ágústsdóttir húsfreyja, f. 25. mars 1963. Maður 2. hennar Gunnlaugur Ólafsson.
3. Guðmundur Ágústsson, f. 12. nóvcember 1964. Kona hans Andrea Inga Sigurðardóttir.
4. Ágúst Grétar Ágústsson, f. 3. apríl 1973. Fyrrum kona hans Erna Ósk Grímsdótir.
5. Sæþór Ágústsson, f. 18. október 1979. Kona hans Rampai Kasa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.